fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Enn hefur ekki verið ákært vegna meintra fjársvika úr Ábyrgðasjóði launa: „Þetta er náttúrulega sameiginlegur sjóður landsmanna“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 6. ágúst 2019 22:36

Myndin er samsett úr myndum úr safni og skjáskoti frá Fréttatímanum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grunur leikur á að umtalsvert fé hafi verið fengið af Ábyrgðarsjóði launa með sviksamlegum hætti. Upphaflega var greint frá málinu á árinu 2016 í Fréttatímanum sem þá var undir ritstjórn Þóru Tómasdóttur og Gunnars Smára Egilssonar. Enn hefur ekki verið gefin út ákæra í málinu sem heimildir DV herma að sé enn til rannsóknar hjá ákærusviði Héraðssaksóknara.

Fréttatíminn greindi frá því í ágúst 2016, í frétt sem bar fyrirsögnina „Eggert Skúli víða sakaður um svik“,  að launakröfur frá tveimur fyrirtækjum tengdum Eggerti Skúla Jóhannessyni, framkvæmdastjóra, hefðu borist í Ábyrgðarsjóð launa. Hlutverk Ábyrgðarsjóðs launa er að bera ábyrgð á launum starfsmanna fyrirtækja sem fara í þrot. Starfsmenn gera kröfur í þrotabú vinnuveitanda síns og geta þá fengið launin sín greidd úr ábyrgðarsjóð.

Meintir starfsmenn fyrirtækja tengdum Eggerti Skúla fóru fram á háar greiðslur úr Ábyrgðarsjóði og áttu sumir hverjir að hafa starfað launalaust fyrir fyrirtækin í ríflega hálft ár launalaust. Heimildir DV herma að málið varði þó nokkur þrotabú sem virðist tengjast sömu aðilum og að launakröfurnar hafi jafnvel komið frá meintum starfsmönnum sem aldrei hafi unnið fyrir þessi fyrirtæki og kannist jafnvel sjálfir ekki við að hafa lagt fram kröfurnar.

Blaðamaður hafði samband við embætti Héraðssaksóknara en var greint frá því að ekki væri hægt að veita svör fyrir fyrirspurnum sökum þagnarskyldu, en samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV hefur málið dregist mikið á langinn sökum þess að illa hefur gengið að ná í einn sakborning og ekki vitað með vissu hvar hann heldur sig.

Heimildarmaður DV, sem ekki vill láta nafn síns getið, segist í samtali við blaðamann telja Eggert siðblindan og telur ámælisvert hvað rannsókn málsins hefur dregist á langinn: „Þetta er náttúrulega sameiginlegur sjóður landsmanna. Núna þurfti virkilega á þessum sjóð að halda og þá er nú allt í lagi að það séu inni einhverjir aurar í þessum sjóð að það séu ekki menn eins og Eggert sem eru búnir að tæma þetta.“

Ítarlega verður fjallað um málið í helgarblaði DV

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar