fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Adolf segir farir sínar ekki sléttar: „Erum við virkilega á leiðinni að gera íslensku að minnipokamáli?“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 27. júlí 2019 16:24

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Adolf Ingi Erlingsson, áður einn þekktasti íþróttafréttamaður landsins en starfar nú í ferðaþjónustunni, segir farir sínar ekki sléttar af farangursþjónustu Icelandair í stöðufærslu á Facebook.

„Ég þurfti að aðstoða farþega við að hafa uppi á týndum farangri. Eftir að hafa reynt í tvo og hálfan tíma að ná í farangursþjónustu Icelandair og IGS var loks svarað hjá Icelandair. Ekki gat viðkomandi þó hjálpað mér þar eð flugið var ekki á þeirra vegum. Nema með því að biðja kollega sinn hjá IGS að hringja í mig sem var síðan gert. Það tók sem sé góða tvo og hálfan tíma að ná sambandi,“ lýsir Adolf Ingi.

Hann segir að það sem gerðist næst hafi ekki gert þjónustuna skárri. „En það sem mér þótti næstum verra að hvorugur starfsmaðurinn sem ég talaði við var mæltur á íslenska tungu. Ég er vanur því á ferðum mínum um landið að geta ekki notað íslensku á hótelum og veitingastöðum. En hér er um að ræða „þjónustu“ þar sem fólk á að hringja og fá úrlausn sinna mála. Vissulega er þorri Íslendinga þokkalegur í ensku, en alls ekki allir. Erum við virkilega á leiðinni að gera íslensku að minnipokamáli? Er þetta í lagi?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar