fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Alvarleg sýking hjá börnum á höfuðborgarsvæðinu – Getur valdið nýrnabilun og blóðleysi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 4. júlí 2019 12:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matvælastofnun (MAST) greinir frá hrinu alvarlegra sýkinga hjá börnum af völdum E.coli bakteríu (STEC). Segir í tilkynningu frá MAST að á undanförnum 2-3 þremur vikum hafi fjögur börn greinst með alvarlega sýkingu af völdum STEC bakteríunnar. Hún getur smitast með menguðum matvælum eða vatni, með beinni snertingu við dýr eða mengaðan úrgang dýra. Bakterían kemst þannig um munn og niður í meltingarveg og framleiðir eiturefni sem getur valdið blóðugum niðurgangi og í alvarlegum tilfellum nýrnabilun og blóðleysi.

Í tilkynningunni segir enn fremur:

„Börnin sem sýktust búa öll á höfuðborgarsvæðinu en hafa öll líklega smitast í uppsveitum Árnessýslu eða nánar tiltekið í Bláskógabyggð en á þessari stundu er ekki ljóst hver uppspretta smitsins er. Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit Suðurlands vinna nú að því að greina uppruna sýkinganna og stöðva frekari útbreiðslu.

Matvælastofnun greindi nýlega frá tilvist sjúkdómsvaldandi baktería í kjöti á markaði á Íslandi. Þar kom fram að STEC bakteríur finnast í 30% sýna af lambakjöti og 11,5% sýna af nautgripakjöti. Auk þess geta bakteríurnar fundist í ógerilsneyddri mjólk.

Einstaklingar sem dvalist hafa undanfarnar 2–3 vikur í uppsveitum Árnessýslu (Bláskógabyggð) og veikjast með blóðugum niðurgangi eru hvattir til að leita til læknis svo ganga megi úr skugga um hvort þeir hafi sýkst af ofangreindri bakteríu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar