fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Helgi Seljan segir Jón Baldvin huglausan: Fór frekar í vammlausa Garðbæinginn en götustrákinn að austan

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 28. júní 2019 16:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Seljan fjölmiðlamaður segir að stefna Jón Baldvins gegn Aldísi dóttur sinni, RÚV og Sigmari Guðmundssyni, meðal annars bera vitni um hugleysi. Helgi Seljan og Sigmar ræddu báðir við Aldísi í  morgunútvarpinu á Rás 2 þar sem Aldís sakaði föður sinn um kynferðisofbeldi og fyrir að hafa með spillingarkenndum hætti látið svipta sig sjálfræði. Athygli vekur að Jón Baldvin stefnir ekki Helga Seljan.

Helgi skrifar:

Fyrir utan hversu arfavitlaus þessi stefna er, skulu menn hafa í huga gegn hverjum hún beinist ekki. Nefnilega ekki neinni af öllum þeim konum sem stigu fram í Stundinni og þessum sama útvarpsþætti og lýstu – ekki síður – ógeðfelldu ofbeldi sem þær sættu af hendi þessi manns.

Fyrir vikið er þessi stefna, glórulaus sem hún er, fyrst og fremst einhver tilraun til pólitískrar leiksýningar þess sem stefnir. Og hefur ekkert með réttlætis- eða sannleiksást að gera. Ekki neitt. Heldur er þetta bara enn ein uppsetningin á þessu þrautleiðinlega skólaleikriti Skeggjabekksins; sem við erum einhverra hluta vegna alltaf og enn neydd til að sitja undir.

En þetta sýnir ef til vill í leiðinni hugleysi sama gæja. Hann stefnir dótturinni, sem hann hefur úthrópað fárveika á geðsmunum og þar með ómarktæka, þvert á álit sérfræðinga.

En hann stefnir ekki hinum. Hann þorir því ekki, vitandi sem er að þá fá þær allar loksins áheyrn yfirvalda.

Helgi Seljan segist fullviss um að endir málsins verði góður en pistil hans má lesa með því að smella á FB-færsluna hér undir:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu