fbpx
Mánudagur 25.ágúst 2025
Fréttir

Ómar axlarbrotnaði vegna gáleysis hjólreiðamanns og kallar eftir harðari viðurlögum 

Ritstjórn DV
Föstudaginn 10. maí 2019 20:00

Ómar lætur ekki mótlæti stöðva sig.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnarsson veltir fyrir sér hvers vegna ekki er tekið harðara á og betur fylgst með snjallsímanotkun undir stýri hér á landi. Ómar axlarbrotnaði og meiddist á hné í upphafi árs vegna gáleysis hjólreiðamanns.

Ómar segir frá þessu á bloggsíðu sinni þar sem hann vísar í fréttir frá Bretlandi þess efnis að knattspyrnukappinn fyrrverandi David Beckham hafi verið sviptur ökuréttindum í hálft ár. Beckham var staðinn að því að nota farsíma undir stýri en áður hafði hann verið staðinn að hraðakstri. Þessi tvö brot gerðu það að verkum að hann var sviptur ökuréttindum.

Ók beint aftan á hann

Ómar segist þekkja nokkur dæmi um slys í umferðinni af völdum ökumanna sem eru með hugann við annað, til dæmis símann.

„Vinur minn ók fyrr í vetur að gatnamótum og stöðvaði bíl sinn, vegna rauðs umferðarljóss.  Hann sá þegar hann leit í baksýnisspegil að bíll kom á miklum hraða aftan að honum í nokkur hundruð metra fjarlægð og nálgaðist hratt.  Án þess að vinur minn fengi nokkra rönd við reist ók þessi aðvífandi bíll beint aftan á hann, eyðilagði bílinn í hörðum árekstri og veitti vini mínum hálsáverka, svo að hann gekk með hálskraga á eftir.“

Fylgdist ekki með hjólastígnum

Ómar nefnir svo annað dæmi um frænku sína sem lenti í árekstri fyrir nokkrum árum. Hún axlarbrotnaði svo illa að hún glímdi við afleiðingarnar í meira en ár á eftir og mun sennilega aldrei ná sér almennilega.

„Sjálfur var ég á rafreiðhjóli í upphafi árs og mætti þar manni á rafreiðhjóli, sem tók fyrirvaralaust upp á því að sveigja í veg fyrir mig, svo að ég axlarbrotnaði og skaddaðist á hné í árekstrinum. Hann hafði verið að lesa á mæli án þess að fylgjast hjólastígnum framundan.“

Slysið sem Ómar lenti í varð á hjólastígnum á Geirsnefinu þegar degi var tekið að halla. Ómar sagði í færslu sem hann skrifaði í apríl síðastliðnum að undanfarin fjögur ár hafi hann verið á ferli á rafreiðhjóli, vespu og minnsta rafbíl Íslands. Ferðalög hans hafi gefið gott tækifæri til að sjá hversu algeng símanotkunin er meðal ökumanna. Þá séu dæmi um fólk sem er með heyrnartól að hlusta á tónlist og heyrir ekki í bíflautu eða hjólabjöllu.

Engu skárri en ölvunarakstur

Í færslunni sem Ómar skrifaði í gær bendir Ómar á að þetta athyglisleysi sé hraðvaxandi orsök umferðarslysa hér á landi. Og einhverra hluta vegna yppti menn öxlum yfir því þótt verið sé að myndast við einhverja sekt.

„Og meira að segja því andmælt í athugasemd hér á síðunni að athugun Samgöngustofu á þessum nýja vanda sýni, að þessi orsök alvarlegra slysa og banaslysa sé orðin tíðari en slík slys af völdum ölvuaraksturs,“ segir Ómar og bendir á að öðru máli virðist gegna um Bretland. Nefnir hann mál Davids Beckham í því samhengi.

„Spurningar vakna um það, af hverju sé ekki takið harðara á og fylgst betur með snjallsímanotkun undir stýri hér á landi. Og hvers vegna harðari viðurlög liggi við ölvunarakstri en sjallsímanotkun, þótt snjallsímanotkunin sé engu skárri, jafnvel verri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald

Landsréttur sneri við úrskurði héraðsdóms í Hraðbankamálinu og sakborningur fer í gæsluvarðhald
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband

Póstburðarmaður vekur mikla athygli eftir að þetta náðist á myndband
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsa yfir hungursneyð á Gaza

Lýsa yfir hungursneyð á Gaza
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru tíu tekjuhæstu Íslendingarnir á síðasta ári – Fengu samtals um 30 milljarða

Þetta eru tíu tekjuhæstu Íslendingarnir á síðasta ári – Fengu samtals um 30 milljarða