fbpx
Sunnudagur 24.ágúst 2025
Fréttir

Gunnar í Krossinum segir að Ísland þurfi að flytja inn erlent vinnuafl vegna fóstureyðinga

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. maí 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Þorsteinsson, betur þekktur sem sem Gunnar í Krossinum, er einlægt á móti því að leyfa fóstureyðingar og ætti það ekki að koma neinum á óvart. Í færslu á Facebook kemur hann þó með ansi nýstárleg rök gegn þungunarrofi, en hann segir að Ísland hafi þurft að flytja inn erlent vinnuafl til að vega á móti því.

„Sú var tíðin að móðurkviður var öruggt skjól fyrir hið ófædda barn. Nú er það eini staðurinn þar sem Íslendingar eru réttdræpir. Vanfær kona gengur með líkama annars einstaklings. Enn segir í heilagri Ritningu „þú skalt ekki mann deyða.“ Ég er þeirrar skoðunar að ófætt barn sé hælisleitandi og lífið frá getnaði til grafar sé heilagt,“ segir Gunnar.

Hann telur að um 40 þúsund fóstrum hafi verið eytt frá lögleiðingu. „Frá því að fóstureyðingar voru lögleiddar á Íslandi hafa um fjörutíu þúsund börn farið undir hnífinn. Til að fylla í þessi skörð höfum við flutt inn erlent vinnuafl. Ég er sannfærður um að hið saklausa blóð sem úthellt er daglega hér á landi hrópi upp í himinn Guðs. Menn þurfa að gæta að sér,“ segir Gunnar.

Samkvæmt nýju frumvarpi um þungunarrof frá Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra verður mæðrum heimilt að eyða fóstri sínu fram að 23. viku meðgöngu, í stað 16. vikna líkt og núgildandi lög kveða á um, að gefnum vissum forsendum. Markmið frumvarpsins er að tryggja að sjálfsforræði kvenna sem óska eftir þungunarrofi sé virt með því að veita þeim öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu.

Hefur frumvarpið vakið mikla umræðu og fólk skiptist talsvert í fylkingar vegna málsins. Pólarnir virðast fyrst og fremst vera kristið fólk annars vegar og femínistar hins vegar. Þó virðist sem fleiri Íslendingar séu fylgjandi frumvarpinu en andvígir. Frumvarp Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um þungunarrof var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða að lokinni annarri umræðu á Alþingi á dögunum  en endanleg atkvæðagreiðsla fer fram eftir viku.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir Landsvirkjun ásælast Þjórsárver eins og Rússar Úkraínu

Segir Landsvirkjun ásælast Þjórsárver eins og Rússar Úkraínu
Fréttir
Í gær

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu

Hraðbankamálið: Lögreglan krefst gæsluvarðhalds yfir konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”

Hildur ómyrk í máli: „Enn eitt dæmið um stjórn­un­ar­vanda inn­an borg­ar­kerf­is­ins”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta eru skilyrðin sem Pútín setur fyrir friðarsamningi

Þetta eru skilyrðin sem Pútín setur fyrir friðarsamningi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helgi Hrafn segir Guðmund Inga ekki tala ranga íslensku – „Linnulaust væl Íslendinga“

Helgi Hrafn segir Guðmund Inga ekki tala ranga íslensku – „Linnulaust væl Íslendinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð

Óforbetranlegur barnaníðingur samþykkti tillögu saksóknara um að hann verði geldur með skurðaðgerð