Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar fólk við því að hlýða skipunum tölvuþrjóta, en henni hefur borist fjöldi tilkynninga um svikapósta sem hafa verið sendir til fólks undanfarið.
„Svikahrappar sofa aldrei, að því er virðist, en sífellt berast ýmsar útgáfur af svikum sem eru oftast keimlíkar þó,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Brýnt er fyrir fólki að horfa með gagnrýnum augum á erindi sem berast í tölvupósti og borga aldrei fé til aðila nema að vera viss að tilgangurinn sé lögmætur.
Lögreglan vill benda á að ekki er mælt með að þessi upphæð sé greidd. „Þetta eru svikapóstar sem sendir eru á tölvupóstföng sem ganga kaupum og sölum á vefnum og þegar lykilorð móttakandans er einnig gefið upp þá gefur það til kynna að þau lykilorð hafi komið upp í einhverjum lekum.
Þá er einnig mælt með að fólk hylji vefmyndavél sína þegar hún er ekki í notkun og að kanna með hvort tölvupóstföng og notendanöfn þeirra hafi verið í einhverjum lekum. Það er hægt að gera á vefsíðunni HaveIBeenPwned.
Ef upp kemur á þessari síðu að reikningar og lykilorð hafi lekið þarf að breyta lykilorðunum. Lögreglan mælir með að fólk fái sér einhverja lykilorðabanka (forrit sem halda utan um lykilorð) og er auðvelt að finna slíkt með leit á netinu. Þessi forrit búa jafnvel til lykilorð fyrir notendur svo þeir þurfi ekki að nota alltaf sömu lykilorðin. Einnig er gott að vera með tveggja þátta auðkenningu (e. two way authentication) til að gera brotamönnum erfiðara að nota lykilorð sem þeir komast yfir.
Færslu lögreglunnar má sjá að neðan.