fbpx
Laugardagur 23.ágúst 2025
Fréttir

Ófremdarástand í Klukkubergi: „Þetta þarf að stoppa áður en einhver hreinlega drepst hérna fyrir utan“

Auður Ösp
Föstudaginn 3. maí 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar fjölbýlishúss í Klukkubergi í Hafnarfirði eru úrræðalausir gagnvart ófremdarástandi í einni af íbúðum hússins. Viðmælendur DV segjast engan frið fá fyrir stöðugum gestagangi og ónæði sem einkennist af partístandi, háværri tónlist og látum sem rekja má til fíkniefnaneyslu. Lögreglan hefur ekki sinnt málinu þrátt fyrir ítrekaðar tilkynningar. Ástandið hefur varað í rúmlega tvo mánuði.

 

Skíthrædd við fólkið

DV ræddi við hjón sem búsett eru í húsinu en þau vilja ekki koma fram undir nafni af ótta við afleiðingarnar. Konan segist vera „skíthrædd“ við fólkið sem dvelur í íbúðinni og þar angi allt af kannabis.

„Á neðri hæðinni býr stúlka sem er alla daga, hvort sem það er helgi eða virkur dagur, með alls konar lýð hjá sér,“ segir konan en eiginmaður hennar segir ástandið hafa byrjað fljótlega eftir að unga konan flutti inn. Ónæðið segir hann einkennast af stöðugum látum og öskrum. „Þetta er nánast allan sólarhringinn, partíið dettur kannski niður í smástund og svo byrjar þetta aftur.“

Maðurinn segir íbúa hússins margsinnis hafa rætt málið sín á milli og sendi húsfélagið bréf á leigusala ungu konunnar þar sem kvartað var undan ástandinu. „Leigusalinn hefur greinilega talað við hana af því að eftir það róaðist þetta í nokkra daga. En síðan byrjaði þetta bara aftur og hefur ekki hætt.“

Börn í hættu

Maðurinn segist einu sinni hafa bankað upp á hjá konunni til að kvarta en hrökklast í burtu. „Þarna inni var alls konar pakk og mér var hreinlega hótað lífláti. Ég flýtti mér í burtu og fór og hringdi á lögregluna. Sem kom síðan ekki.“

Hjónin taka fram að í húsinu sé mikið um fjölskyldufólk. Þau segja ungu konuna oftar en einu sinni hafa sést keyrandi um svæðið undir áhrifum vímuefna og verið nálægt því að keyra á börn sem búsett eru í húsinu. Ástandið hefur nú varað í rúmlega tvo mánuði að sögn hjónanna. Þau segja lögregluna hafa vitað af ástandinu síðastliðnar fimm vikur án þess að aðhafast nokkuð. „Það er eins og það sé alveg sama hvað maður segir við þá, við fáum svör eins og „það er nóg að gera“, „við förum í þetta“ og „þetta er í farvegi.“

Hjónin gagnrýna harðlega aðgerðaleysi lögreglunnar í málinu. „Lögreglan gerir ekkert í málunum þó svo að allir í blokkinni hafi kvartað, bæði til lögreglunnar og húsráðanda. Það hafa allir beðið um nafnleynd enda mikið af sprautuliði sem er þarna hangandi fyrir utan með alls kyns læti og ógeð sem maður vill ekki beint á tröppurnar hjá sér. Þetta þarf að stoppa áður en einhver hreinlega drepst hérna fyrir utan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt