Sema Erla Serdar, sem er virkur félagi í Samfylkingunni til langs tíma, er afar ósátt við endurkomu Ágústs Ólafs Ágústssonar á Alþingi en hann tók sæti á ný eftir ólaunað leyfi. Ágúst Ólafur hefur játað á sig óviðeigandi framkomu við Báru Huldu Beck, blaðamann á Kjarnanum, er þau áttu samverustund á ritstjórnarskrifstofu Kjarnans sumarið 2018. Ágúst Ólafur fór af Alþingi snemma í desember vegna málsins og fór síðan í langa áfengismeðferð.
Margir hafa fagnað framgöngu Ágústs Ólafar í málinu, auðmýkt hans og iðrun. Ekki eru þó allir sammála um þetta og Sema Erla segir að Ágúst Ólafur geti einfaldlega beðið um annað tækifæri í prófkjöri flokksins fyrir næstu kosningar. Sema skrifar:
„Kynferðisleg áreitni er með öllu ólíðandi, óháð því hver birtingarmynd hennar er, hvar hún á sér stað og hver það er sem beitir henni. Að flokkur jafnarmanna, með forystukonur metoo-byltingarinnar innanborðs, flokkur sem segist berjast gegn kynbundnu ofbeldi, flokkur mannréttinda og femínískrar hugmyndafræði, skuli vera með fulltrúa á þingi sem hefur gerst sekur um kynferðislega áreitni er með öllu óásættanlegt og það er siðlaust. Það gerir lítið úr öllum þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í stjórnmálum og það gerir lítið úr raunum þolenda slíks ofbeldis. Flokkurinn getur ekki furðað sig á því að konur endist illa í ábyrgðarstöðum innan flokksins og á sama tíma boðið ítrekað upp á starfsumhverfi eins og þetta.“
Sema segir að henni hafi oft misboðið meðvirknin í flokknum en aldrei sem nú og sakar hún flokksfélaga sína um að taka ekki skýra afstöðu gegn kynferðislegu ofbeldi:
„Ég hef verið í Samfylkingunni í meira en áratug og gegnt hinum ýmsu ábyrgðarstöðum fyrir flokkinn, meðal annars stöðu formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Mér hefur oft misboðið meðvirknin og vinnubrögðin innan flokksins en sjaldan jafn mikið og nú. Að taka ekki skýra afstöðu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum tilvikum er hræsni. Ég er viss um að það myndi heyrast hærra í flokksfélögum mínum ef þingmaður annars flokks gerðist sekur um kynferðislega áreitni og sæti sem fastast á þingi. Hvað Ágúst Ólaf varðar getur hann beðið um annað tækifæri í prófkjöri flokksins og/eða hjá kjósendum í næstu kosningum. Samfélagsmiðlar duga bara ekki til.“
Sema segir að skoðun hennar sé kannski ekki líkleg til vinsælda en Samfylkingin megi ekki láta afstöðu sína stjórnast af því hver eigi í hlut hverju sinni:
Þetta er kannski ekki vinsælasta skoðun dagsins hjá félögum mínum í Samfylkingunni en ef við ætlum að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vettvangi stjórnamálanna og í samfélaginu öllu þurfum við að gera það af heilindum og hugrekki en ekki eftir hentugleika og því hver gerandinn er.