Kærasta Gísla Þórs Þórarinssonar, sem lét lífið í bænum Mehamn á Noregi síðastliðinn laugardag, er barnsmóðir Gunnar Jóhanns Gunnarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa banað Gísla. Vísir greinir frá þessu.
Gísli og Gunnar eru, líkt og áður hefur komið fram, sammæðra bræður. Gunnar segist miður sín yfir hvernig fór en þetta hafi verið hræðilegt slys. Hann hafi aldrei viljað skaða bróður sinn. Í játningunni sem Gunnar birti á Facebook síðu sinni skömmu eftir verknaðinn lýsir hann því yfir að hann hafi verið með brotið hjarta.
„Fyrirgefið mér, en ég get ekki lifað með það vitandi að guðfaðir sonar míns, minn besti maður í giftingunni minni, og ég skýrði son minn í höfuð hans. […] Hjartað mitt var brotið það mikið að ég framdi svívirðilegan glæp.“
Gunnar Jóhann og Elena Undeland giftu sig árið 2013 og eiga börn saman. Þau slitu samvistum fyrir tveimur árum. Elena varð síðar kærasta Gísla Þórs. Hún skrifaði í færslu á Facebook að Gísli Þór hafi verið: „blíður og góður, heimsins besti kærasti og stjúpfaðir.“
Gunnar Jóhann var yfirheyrður í sex klukkutíma í gær og greindi þá frá því að það hafi aldrei verið ásetningur hans að skaða bróður sinn. Þetta kemur fram í frétt Vísis. Verjandinn sagði að Gunnar muni vel eftir atburðarrásinni og sé miður sín yfir hvernig fór.
„Hann man mjög vel eftir því sem gerðist, daginn áður, um kvöldið, nóttina og morguninn eftir. Allar þessar klukkustundir skipta máli, hann man þetta skýrt og man öll grundvallaratriðin. Hann hefur lýst því sem gerðist í tímaröð fyrir lögreglu og hvernig hann man þennan hræðilega atburð.“
Verjandinn, Vidar Zahl Arntzen, segir að Gunnar hafi ekki farið til Gísla Þórs til að vinna honum mein.
„En það sló í brýnu á milli þeirra í íbúðinni og bróðir Gunnars særðist í þeim átökum. Gunnar reyndi svo að ná í hjálp en við vitum öll hvernig þesus lauk.“ Gunnar lýsir sig saklausan af ásökun um morð. „Hann segir að þetta hafi verið hræðilegt, sorglegt slys.“