Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, er afar óhress með forsvarsmenn og eigendur fyrirtækja sem gera út á sérstakan tilboðsdag á baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar.
Ragnar Þór segir frá þessu á Facebook-síðu sinni og birtir mynd af Fréttablaðinu í morgun. Auglýsing í fjórblöðungi frá Húsgagnahöllinni var utan um Fréttablaðið í dag en þar var auglýstur 25 prósenta afsláttur af öllum vörum. Fylgdi auglýsingunni að opið væri frá 12 til 22 í kvöld.
Þá birtir Ragnar mynd af auglýsingu Rúmfatalagersins á síðu 8 í blaðinu þar sem auglýstur var 20 prósenta afsláttur af öllum vörum í dag. Báðum þessum auglýsingum fylgdi að tilboðin giltu aðeins í dag þann 1. maí, á baráttudegi verkalýðsins.
Ragnari finnst lítið til þessara fyrirtækja koma sem auglýsa sérstakan tilboðsdag á þessum degi.
„Forsvarsmenn og eigendur fyrirtækja sem gera út á sérstakan tilboðsdag á baráttudegi verkalýðshreyfingarinnar eru samfélaginu til háborinnar skammar. Lágkúran og virðingaleysið er algjört. Ég hef tekið þá persónulegu ákvörðun að stíga ekki fæti framar inn í ákveðnar verslanir,“ segir Ragnar.