fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Flugfreyjur WOW air fá aðstoð

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 31. mars 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkomulag hefur verið undirritað milli ASÍ og Flugfreyjufélags Íslands um aðstoð við flugfreyjur WOW air sem misstu starf sitt við fall flugfélagsins. Tilkynning um málið er eftirfarandi:

„Flugfreyjur og flugþjónar sem misstu vinnuna við gjaldþrot WOW air munu ekki fá nein laun frá fyrirtækinu nú um mánðarmótin. Eins og gefur að skilja er það mikið fjárhagslegt högg fyrir þessa einstaklinga. Við erum öll með okkar skuldbindingar og reikninga að borga og það eiga ekki allir varasjóði eða vel stæða ættingja að leita til.

Vegna stöðunnar hefur stjórn Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Alþýðusamband Íslands ákveðið að tryggja fé þannig að starfsfólk fái lágmarks aðstoð í gegnum Flugfreyjufélag Íslands. 

Þar sem um er að ræða 35% af félagsmönnum Flugfreyjufélagsins mun ASÍ hlaupa undir bagga fjárhagslega og verða þannig hluti af lausninni. Vonir standa til að hægt verði að inna greiðslurnar af hendi í þessari viku en starfsfólk þarf að koma á skrifstofu FFÍ og framselja kröfu í þrotabúið. Upphæð aðstoðarinnar fer eftir möguleika FFÍ til að afla upplýsinga um marslaun úr þrotabúinu og því er ekki hægt að staðfesta hana sem stendur. Frekari upplýsingar veitir FFÍ til félagsmanna um leið og mögulegt er.“

Berglind Hafsteinsdóttir (t.v.), formaður Flugfreyjufélags Íslands og Drífa Snædal, forseti ASÍ
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli