Björgunarskip og bátar Landsbjargar á Ísafirði og Bolungarvík hafa verið ræstir út vegna neyðarkalls frá bát á Jökulfjörðum. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg er bátur strandaður og kominn leki að honum.
Björgunarmenn eru á leiðinni með dælur, en það mun taka þá smá tíma að komast á staðinn.