fbpx
Þriðjudagur 14.maí 2024
Fréttir

Agnes er á móti orðinu „þungunarrof“: „Misvísandi að nota þetta nýja hugtak“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 26. janúar 2019 09:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, er andsnúin því að orðið „þungunarrof“ sé notað í stað orðsins „fóstureyðing“. Þetta kemur fram í umsögn hennar um frumvarp til laga um þungunarrof. Þar segir hún enn fremur að hún telji frumvarpið of róttækt en ef það verður að lögum þá mun þungunarrof verða heimilt fram að 22. viku.

„Frumvarp til laga um þungunarrof, á þingskjali 521 – 393. mál, ber með sér róttækar breytingartillögur, sem ég tel að séu mjög umhugsunarverðar. Athugasemdir mínar rita ég sem kristin kona og biskup Íslands. Ég styð þann hluta frumvarpsins um að konur taki sjálfar hina erfiðu ákvörðun sem hér er til umfjöllunar. Það eitt og sér er framför frá því sem var. Ég hef heyrt á mörgu fólki í kirkjunni að þeim þykja tillögur þessa frumvarps ganga of langt. Tvennt er það helst í frumvarpinu sem ég tel sérstaklega umhugsunarvert,“ segir Agnes.

Hún telur að orðið „þungunarrof“ sé misvísandi. „Annars vegar sú breyting á hugtakanotkun sem lögð er til, þar sem hugtakið þungunarrof er nú notað í stað þess sem áður var, fóstureyðing. Hið nýja hugtak vísar á engan hátt til þess lífs sem sannarlega bærist undir belti og er vísir að nýrri mannveru. Samkvæmt kristinni trú okkar er lífið heilagt, náðargjöf sem Guð gefur og Guð tekur. Það er hlutverk mannsins að varðveita það og vernda eftir fremsta megni og bera virðingu fyrir mannhelginni, sköpuninni og skaparanum. Það er misvísandi að nota þetta nýja hugtak í þessu viðkvæma samhengi, þar sem hugtakið vísar ekki til þessa vaxandi nýja lífs,“ segir Agnes.

Að hennar mati gengur frumvarpið of langt. „Hins vegar sú breyting á tímarammanum sem lögð er til, þ.e.a.s. að þungunarrof verði heimilt fram að 22. viku, sbr. 4. gr. frumvarpsins. Dæmin þekkjum við þar sem börn hafa fæðst eftir það skamma meðgöngu, braggast og lifað. Samfélag okkar hefur á undanförnum áratugum fundið jafnvægi á milli hinna ólíku sjónarmiða um rétt hinnar verðandi móður yfir eigin líkama og rétt fósturs til lífs, þrátt fyrir þær mótsagnir sem því fylgir. Þar sem 12 vikna tímaramminn hefur verið studdur sjónarmiðum heilbrigðisvísinda, mannréttinda og í framkvæmd sem bestri þjónustu félagsráðgjafa og annarra fagstétta við þær faglegustu aðstæður sem völ er á. Hinar nýju tillögur raska því jafnvægi, að mínu mati, og vekja jafnvel upp á ný grundvallar spurningar, sem við ættum auðvitað alltaf að spyrja okkur að varðandi mannhelgina og framgang lífs hér í heimi,“ segir Agnes.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Pétur Jökull talinn vera fimmti sakborningurinn í stóra kókaínmálinu – Talinn hafa hitt annan sakborning í miðborginni

Pétur Jökull talinn vera fimmti sakborningurinn í stóra kókaínmálinu – Talinn hafa hitt annan sakborning í miðborginni
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hundruð milljóna gjaldþrot hjá fyrirtæki Ásgeirs – Fékk áður risasekt fyrir skattsvik

Hundruð milljóna gjaldþrot hjá fyrirtæki Ásgeirs – Fékk áður risasekt fyrir skattsvik
Fréttir
Í gær

Frosti segir yfirlýsingu Ingibjargar dapra – „Fleiri slúðursögur réttlæta varla það að leyfa ekki ásökuðum manni að bera hönd fyrir höfuð sé“

Frosti segir yfirlýsingu Ingibjargar dapra – „Fleiri slúðursögur réttlæta varla það að leyfa ekki ásökuðum manni að bera hönd fyrir höfuð sé“
Fréttir
Í gær

Húseigandi í Grindavík segist vera að bugast vegna seinagangs Þórkötlu

Húseigandi í Grindavík segist vera að bugast vegna seinagangs Þórkötlu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara

Yfirþjálfara fimleikadeildar Gróttu sagt upp störfum – Málið tengist þjálfunaraðferðum hjá umdeildum gestaþjálfara
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum

Talið að Rússar geri út glæpamenn til að vinna skemmdarverk í Evrópu og Bandaríkjunum