fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Landadrykkjumenn af Suðurnesjum handteknir – Erill hjá lögreglunni vegna frídags

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 6. ágúst 2018 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að fjöldi íbúa höfuðborgarinnar sé á faraldsfæti þessa helgina og aðfararnótt mánudags, var töluvert annríki hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Frídagur verslunarmanns er í dag, skemmtistaðir voru því með opið lengur en hefðbundið er aðfararnótt sunnudags og margir því tilbúnir að lengja helgina með tilheyrandi vinnu fyrir lögregluna.

Í Bankastræti voru tveir ungir landadrykkjumenn um tvítugt handteknir. Gátu þeir lítið sem ekkert tjáð sig vegna ástands síns, en talið er að þeir búi á Suðurnesjum. Fengu þeir að njóta gistingar í fangageymslu lögreglu þar til rennur af þeim.

Fjöldi ökumanna var stöðvaður víðs vegar um borgina grunaðir um að keyra undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eða jafnvel bæði. Einnig er nokkuð um að ökumenn keyri sviptir ökuréttindum eða hafi aldrei öðlast þau.

Ökumaður á Reykjanesbraut var stöðvaður við Kúagerði eftir hraðamælingu, eitthvað hefur hann líka átt annríkt þar sem hann hafði enn ekki komist í að taka nagladekkin undan bifreiðinni og var því einnig kærður fyrir akstur bifreiðar á nagladekkjum eins og segir í dagbók lögreglunnar.

Ökumanni í Ártúnsbrekku lá á, en hann var stöðvaður eftir hraðamælingu á 117 km, en ökuhraði þar er 80 km. Hann er einnig grunaður um ölvun við akstur og akstur án réttinda, það er hafði ekki öðlast ökuréttindi eftir sviptingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum