fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Lög og reglur brotin í 10 ár: „Eftirlit hefur ekki verið fullnægjandi“

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Laugardaginn 14. júlí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Undanfarið hefur DV fjallað um málefni Videómarkaðsins í Hamraborg. Í umfjöllun blaðsins hefur komið fram að sjoppan er með vínveitingaleyfi í flokki þrjú sem aðeins er ætlað umfangsmiklum áfengisveitingastöðum. Eigendur Videómarkaðarins hafa myljandi tekjur af spilakössum sem staðsettir eru í hliðarherbergi sjoppunnar og er áðurnefnt vínveitingaleyfi forsenda fyrir því að fyrirtækið fékk að reka tekjuhæstu spilakassana. Þá er ákveðinn ómöguleiki fólgin í því að Videómarkaðurinn hefur aðeins leyfi fyrir 49 „veitingahúsagesti“ en rekur engu að síður tæplega 90 spilakassa.

Gögn málsins sýna með óyggjandi hætti að eftirlitsaðilar hafa hreinlega brotið lög og reglur undanfarin tíu ár. Blaðamaður hefur freistað þess undanfarna daga að fá skýr svör frá hinum ýmsu opinberu stofnunum varðandi leyfisveitinguna og hvernig eftirliti er háttað. Það hefur gengið erfiðlega svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi.

Högnuðust um 207 milljónir vegna fjárhættuspila

Á dögunum óskaði Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogsbæ, eftir upplýsingum frá bænum varðandi málið. Spurði Sigurbjörg hvernig það hafi getað viðgengist að stofnanir bæjarins, eins og heilbrigðiseftirlit og byggingarfulltrúi, hafi ekki gefið réttar upplýsingar til bæjarráðs þegar umsagnarbeiðni Vídeómarkaðsins um vínveitingaleyfi hefur verið lögð aftur og aftur fyrir bæjarráð. Síðustu tíu ár hefur bæjarráð Kópavogs alltaf gefið jákvæða umsögn vegna umsóknar Vídeómarkaðins án athugasemda.

DV hafði samband við Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóra Kópavogs, vegna málsins. Upplýsti Ármann blaðamann um að bæði byggingarfulltrúi Kópavogsbæjar og forstjóri heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogsbæjar hafi komið á fund bæjarráðs til að útskýra mál sitt. Ekki væri þó hægt að gefa upp hvað kom fram á fundinum þar sem trúnaður gildir um bæjarráðsfundi. Aðspurður hvort honum þætti eðlilegt að reknir séu staðir eins og Videómarkaðurinn  í Kópavogi, sem selja áfengi og börn geta heimsótt án takmarkana, sagði hann: „Mér finnst það ekki fara saman.“ Samkvæmt bestu vitund blaðamanns er Kópavogur eina sveitarfélagið í landinu þar sem sjoppa sem selur eingöngu pylsur er með vínveitingaleyfi í flokki þrjú.

Eins og hefur áður komið fram í umfjöllun DV um málið hefur komið í ljós að bæði Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogs, ásamt byggingarfulltrúa Kópavogs hafi brotið lög og reglur þegar kom að umsagnarferli Videómarkaðsins um umsókn þeirra fyrir vínveitingaleyfi. Ástæðan fyrir því að þessi gamla vídeóleiga þarf vínveitingaleyfi er sú að með því leyfi geta þeir séð um rekstur spilakassa. Virðist sá rekstur ganga ágætlega og höfðu eigendur Videómarkaðsins vel upp úr krafsinu. Högnuðust þeir um 207 milljónir króna á árunum 2015 og 2016 vegna fjárhættuspila. Í því samhengi er rétt að geta þess að Hanna Sigurðardóttir, sem á 50% hlut í Videómarkaðnum ehf., er einnig starfsmaður á bæjarskrifstofu Kópavogsbæjar.

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Engar athugasemdir til sýslumanns

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sér um útgáfu vínveitingaleyfa í Kópavogi og safnar saman gögnum frá umsagnaraðilum eins og Heilbrigðiseftirlitinu, byggingarfulltrúa, bæjarráði, lögreglu, vinnueftirlitinu og slökkviliðinu. DV hafði samband við Sigurð G. Hafstað fagstjóra hjá þinglýsinga- og leyfissviði hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem sér um að gefa út leyfin og spurði hann út í málið.

„Eftirlitsaðilar skulu tilkynna leyfisveitanda um alvarlegar athugasemdir sem þeir kunna að gera við rekstur leyfishafa og annað sem er tilefni athugasemda af þeirra hálfu við starfsemi og áhrif kann að hafa á rekstrarleyfið.“ Hann staðfestir að sýslumannsembættið hafi ekki fengið neinar athugasemdir varðandi vínveitingaleyfi Videómarkaðsins og segir: „Síðan umrætt leyfi var endurnýjað hefur leyfisveitanda ekki borist nein gögn frá eftirlits- eða umsagnaraðilum sem tengjast athugasemdum um rekstur staðarins eða hnekkt geta efni fyrirliggjandi umsagna.“

„Jájá, það eru einhverjar pylsur og eitthvað svoleiðis“

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu fer með eftirlit á starfsemi Vídeómarkaðsins samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Í umsögn sinni vegna leyfis Videómarkaðsins á sínum tíma gerði lögreglan engar athugasemdir og hefur ekki gert athugasemdir við rekstur eins stærsta spilakassasalar á landinu undanfarin tíu ár. Það er þrátt fyrir að gögn sýni fram á að staðurinn hefur aldrei uppfyllt kröfu laganna öll þau tíu ár sem Videómarkaðurinn hefur verið með vínveitingaleyfið.

DV hafði samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu til að fá svör við því hvers vegna lögreglan hafi ekki tekið eftir þeim augljósu brotum sem eiga sér þar stað í hvert skipti sem þeir gerðu út staðinn og skiluðu jákvæðri umsögn til sýslumannsins. Í samtali við DV staðfesti Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóri að hann hafi farið í eftirlitsferð eftir að DV birti frétt um að unglingar gátu keypt áfengi í Videómarkaðnum og tekið með sér. Blaðamaður spurði hann þá hvort hann teldi að staðurinn uppfyllti skilyrði laganna um að flokkast sem vínveitingastaður svaraði hann: „ Já, þeir gera það að mínu viti“. Samkvæmt lögunum er gerð sú krafa að til þess að staður sé skilgreindur sem veitingastaður þarf hann að vera með fjölbreyttar veitingar í mat og drykk og fulla þjónustu og auk þess þarf að vera starfandi maður með fullnægjandi þekkingu í framleiðslu. Þegar blaðamaður spurði aðalvarðstjórann hvort staðurinn uppfyllti þá skilgreiningu svaraði hann: „Nei ég hef svo sem… jájá, það eru einhverjar pylsur og eitthvað svoleiðis sem þeir eru að búa til þarna, það er víða þannig. Það er ekki matreiðslumaður starfandi þarna.“

Velta hálfum milljarði fyrir HHÍ

Happdrætti Háskóla Íslands á 52 spilakassa  af þeim rúmlega 90 kössum sem eru á Videómarkaðnum. Sú tala er nokkuð undarleg í ljósi þess að samkvæmt leyfi frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins mega eingöngu 49 manns vera í húsnæðinu á hverjum tíma. Um mikilvægt viðskiptasamband er að ræða þar sem Videómarkaðurinn veltir gríðarlegum fjárhæðum fyrir HHÍ. Alls velta spilakassar um 9 milljörðum á ári hjá HHÍ en Videómarkaðurinn er með um 10% allra spilakassa sem starfræktir eru. Veltan gæti því verið allt að einn milljarður á ári og hagnast báðir aðilar vel. Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri HHÍ, viðurkenndi í samtali við blaðamenn að það „hljómaði illa“ að mun fleiri spilakassar væru í rekstri hjá Videómarkaðinum en rúmast þar innandyra samkvæmt leyfum.

Þegar Bryndís var spurð hvernig það gæti verið að Happdrætti Háskóla Íslands og starfsmenn fyrirtækisins hafi aldrei tekið eftir því undanfarin áratug að einn stærsti umboðsaðili þeirra uppfyllti ekki kröfur sem gerðar eru til staða sem geta verið með spilakassa frá þeim sagði hún: „Ekki þarna í Videómarkaðnum, nei. Ég bara viðurkenni það að ég hef ekki haft hugmynd um að það gæti mögulega verið.“

Bryndís Hrafnkelsdóttir

Staðfesti hún við blaðamann að hún sem forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands hafi margsinnis farið að skoða Videómarkaðinn sjálf. Aðspurð hvort að hún hefði ekki átt að sjá að ólíklegt væri að staðurinn uppfyllti skilyrði laganna sagði hún: „Ég þarf bara að skoða þetta mál, það er ekki flóknara en það.“

Passa fyrst og fremst aldurstakmarkanir

Þegar Bryndís var spurð út í hver eftirlitsskylda Happdrættis Háskóla Íslands væri gagnvart sínum umboðsmönnum sagði hún í tölvupósti að Sýslumaðurinn á Suðurlandi sæi alfarið um eftirlit með öllum spilakössum á landinu. Þegar blaðamaður benti henni á að það væri nú ákveðin eftirlitsskylda sem fyrirtæki hennar hefði gagnvart sínum umboðsmönnum svaraði hún: „Til dæmis með aldurstakmörkin það er það sem við pössum.“ Þegar blaðamaður benti henni á að ekkert aldurstakmark gilti til að fara inn í söluturninn Vídeómarkaðinn svaraði hún um hæl: „Víst er aldurstakmark inn á Videómarkaðinn. Það eru fleiri staðir til þar sem þú þarft að labba í gegnum einhverja sjoppu, ég man ekki hvort það voru Íslandsspil sem voru með þannig stað og það hefur verið horft fram hjá því. Þetta hefur allavega verið viðurkennt. Hver er að stoppa þetta ? Þetta hefur verið með þessum hætti síðan 1994.“

Bryndís var svo spurð í lokin hvort Happdrætti Háskóla Íslands ætli að bregðast við þessum ábendingum sem hafa komið fram í fjölmiðlum og í hverju þau viðbrögð felast, sagði hún: „Ég ætla að láta skoða þetta“.

„Eftirlit hefur ekki verið fullnægjandi“

DV hafði enn fremur samband við Sýslumanninn á Suðurlandi, sem samkvæmt lögum á að sjá um eftirlit með öllum spilakössum á landinu, og spurði hvernig eftirlitinu væri háttað. Í samtali við Kristínu Þórðardóttur, settan sýslumann á Suðurlandi, sagði hún: „Hins vegar skal ekki dregin fjöður yfir það að eftirlit hefur ekki verið fullnægjandi. Til þess skortir embættið fjárheimildir. Til þess að halda uppi virku eftirliti þarf fjármagn. Eins er orðið tímabært að heildarendurskoðun fari fram á löggjöfinni í málaflokknum.“

Svo virðist sem eftirlit með spilakössum á Íslandi, sem velta um 9 milljörðum á ári, sé lítið sem ekkert og keppast aðilar við að benda á hvorn annan þegar kemur að því að fá svör varðandi leyfisveitingar og eftirlit.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar