fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Áslaug Arna trúir ekki útskýringum Sigmundar: „Ekkert, enn sem komið er, sem sýnir eftirsjá“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 4. desember 2018 09:33

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir..

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður og ritari Sjálfstæðisflokksins, segir útskýringar Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar á ýmsum öngum Klaustursmálsins ekki vera trúverðugar. Hún segir að það væri stutt í fyrirgefningu ef raunveruleg iðrun hefði komið fram, en það hafi ekki gerst. Þetta kemur fram í skoðanapistli í Morgunblaðinu.

„Þegar ég sest niður til að skrifa grein eða pistil um stjórnmál byrja ég á því að velta því fyrir mér hvaða málefni skuli taka fyrir eða hvaða pólitísku skilaboðum ég vil koma á framfæri. Ég geri ráð fyrir að flestir stjórnmálamenn hugsi þannig. Stundum eru þó einhver önnur mál sem koma upp og mann langar til að fjalla um þótt þau tengist ekki þingstörfum beint,“ segir Áslaug Arna.

Hún segir að umræða sexmenninganna á Klaustur hafi fyrst og fremst snúist um annað fólk. „Það verður ekki sagt að umræða sem nokkrir þingmenn á bar urðu uppvísir að nýlega hafi snúist mikið um pólitík. Umfjöllunarefnið var að mestu annað fólk, m.a. fólk í stjórnmálum, og umræðan var ekki vönduð. Það bætir ekkert þegar sumir þeirra reyna að réttlæta orðalag sitt með þeim rökum að svona sé „kúltúrinn“ í íslenskum stjórnmálum, eða þegar grundvöllurinn að afsökunarbeiðnum er einhvers konar réttlæting á orðanotkuninni, af því að svona hafi þetta alltaf verið,“ segir Áslaug Arna.

Hún segir ekki endilega óeðlilegt að takast hart á í stjórnmálum. „Vissulega hafa einstaklingar tekist harkalega á í gegnum tíðina á vettvangi stjórnmála, jafnt innan sem utan þinghússins. Það þarf ekki að vera óeðlilegt að takast stundum á um einstaka málefni af mikilli hörku. En þá er líka mikilvægt að gera það með rökum og á málefnalegan hátt og án þess að því fylgi meiðandi ummæli eða ósvífni í garð náungans. Átökin snúast fyrst og síðast um ólíka sýn, en ekki algjöra fyrirlitningu í garð annarra,“ segir Áslaug Arna.

Hún telur sömuleiðis að það sé lítið hægt að gera til að koma í veg fyrir slíka hegðun. „Það er ekki hægt að koma í veg fyrir það með fyrirmælum eða reglum að menn hegði sér kjánalega. Þær eru til. Þingmenn hafa sett sér siðareglur, flestir hafa hlotið eitthvert uppeldi og heyrt um gullnu regluna. Það er einfaldlega líklegast til árangurs að halda þá grundvallarreglu í samskiptum og lífinu almennt að koma almennilega fram við aðra. (Og biðjast svo afsökunar án nokkurra skilyrða eða eftiráskýringa ef þér tekst það ekki),“ segir Áslaug.

Hún segir að ekkert hafi komið fram sem bendi til að sexmenningarnir hafi sýnt raunverulega eftirsjá. „Ágætur maður sem nú er fallinn frá, sérfræðingur á sínu sviði, sagði gjarnan þegar vandræði voru á viðskiptavinum hans: „Segðu sjálfur frá, segðu það strax, segðu alla söguna og segðu satt.“ Það væri óskandi að formaður Miðflokksins tæki þetta til sín frekar en að koma með ótrúverðugar útskýringar á tilfærslu húsgagna og þar fram eftir götum. Ef iðrunin er sönn þá er stutt í fyrirgefninguna en það er ekkert, enn sem komið er, sem sýnir eftirsjá yfir öðru en því að allt hafi komist upp.

„Það er skylda okkar kjörinna fulltrúa að berjast fyrir betra samfélagi af heilindum. Við horfum til framtíðar, sjáum heiminn taka stórum breytingum til batnaðar, framfarir á nær hverju sviði og leggjum okkur fram við að vanda okkur. Ef einstaklingar ætla að afsaka hegðun með vísan til eldri tíma, þá getur verið að þeir einstaklingar endi á að missa af vagninum. Vagninum sem er á leið fram veginn af því að framtíðin bíður ekki.,“ segir Áslaug.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum