fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur segir að alltaf megi reyna að græða á sauðheimskum íslensku neytendum – „Íslenskur neytandi er eins og rolla í háu ljósunum“

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 26. nóvember 2018 07:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á dögunum ákváðum við hjónin að kaupa okkur súrdeigsbrauð. Brauðið var afbragðsgott. Þegar sitthvor sneiðin hafði verið borðuð fórum við að velta fyrir okkur, í tíðindaleysi hversdagsins, hvað þessi herlegheit kostuðu. Það rann upp fyrir okkur ljós. Hversu fáránlegt er það að brauð — einn brauðhleifur — skuli kosta þúsund kall? Er það í lagi?“

Svona hefst pistill Guðmundar Steingrímssonar í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fjallar um verðlag hér á landi og af hverju allt þurfi að vera svona dýrt.

„Skyndilega fórum við að umgangast þetta brauð eins og einhver svakaleg gæði. Það skemmist og harðnar á tveimur dögum. Við veltum því auðvitað upp hvort ekki væri skynsamlegt að selja helminginn af því á Bland. Hálft súrdeigsbrauð til sölu. Fimm hundruð kall. Kannski gerum við það næst. Gæti líka verið skynsamlegt að slá saman í svona brauð, nágrannarnir. Spurning um að auglýsa eftir meðfjárfestum. Í öllu falli var það skyndilega orðið visst atriði í heimilishaldinu að reyna að njóta brauðsins á meðan það var enn mjúkt og klára sem mest af því. Í því skyni var farið sérstaklega heim í hádeginu einn daginn til þess að halda áfram að borða brauðið. Við náðum að klára það, svo gott sem. Annað hefði verið agalegt. Ég held að það sé orðið réttmætt og aðkallandi álitamál hvort svona brauð sé ekki tilvalin jólagjöf. Slíkt er verðið.“

Segir hann og segist auðvitað vera orðinn þreyttur á þessu íslenska verðlagi og endalausu dýrtíð.

„Að vera íslenskur neytandi er eins og að vera stanslaust eins og rolla í háu ljósunum. Maður er sífellt undrandi. Alltaf jafn hissa. Alltaf jafn ráðvilltur. Alltaf jafn mikið hafður að fífli einhvern veginn.“

Segir Guðmundur og bætir við að það sé eins og neytendur hafi engin áhrif á verðlagið.

„Á virkilega að rukka mann um 1500 kall fyrir bjór? Í alvöru? Níu þúsund kall fyrir rauðvínsflösku? Tvö þúsund og fimm hundruð fyrir hamborgara? Sjö hundruð og fimmtíu fyrir kaffi? Ísland virðist vera einn stór markaðsbrestur. Það er eins og neytendur hafi engin áhrif á verðlag. Þeir eiga bara að borga.“

Segir hann og kemur síðan með sögu af eldri konu sem er á leigumarkaðnum:

„Ég heyrði sögu af eldri konu á leigumarkaði um daginn. Leigan hennar ríflega tvöfaldaðist á tæplega tveggja ára tímabili. Hún varð að flytja út og leigir núna lítið herbergi. Endrum og eins keyrir hún framhjá gömlu íbúðinni. Hún hefur staðið auð í marga mánuði. Þetta er athyglisvert dæmi sem sýnir málið í hnotskurn: Það virðist vera mikilvægara að rukka hátt verð heldur en að selja vöruna. Stemningin virðist vera sú, að frekar eigi að verðleggja íbúðirnar hátt heldur en að leigja þær út.“

Síðan segir hann frá upplifun sinni af svörtum föstudegi. Þá hugðist hann kaupa hlut sem vantaði á heimilið en þegar nánar var skoðað sá hann að verkfærin, sem hann vatnaði, voru ekki með rafhlöðum. Þær þurfti að kaupa sér og voru rándýr að hans sögn.

„Þetta er allt einhvern veginn svona. Greint var frá því í fréttum að verslanir hefðu verið staðnar að því að hækka verðið í aðdraganda föstudagsins til þess að geta svo auglýst ríflegar lækkanir. Snjallt. Það má alltaf reyna að græða á hinum sauðheimsku íslensku neytendum. Spurningin er hvort svoleiðis þenkjandi kaupmönnum verði kápan úr því klæðinu til lengdar. Einhvern tímann hættir fólk að borga. Ég trúi ekki öðru.“

Síðan víkur hann að því sem honum finnst ljós í myrkrinu í þessu öllu saman og trausti eða öllu heldur vantrausti neytenda í garð verslunar og þjónustu:

„Ég efast ekki um að aðilar í verslunarrekstri eiga alls konar skýringar á hraðbergi fyrir háu verðlagi. Og ég ætla ekki að alhæfa. Sumir virðast leggja sig fram um að reyna að bjóða ásættanleg verð. Nýr hamborgarastaður var opnaður um daginn. Þar er hægt að fá hamborgara á 1100 kall, sýndist mér. Það er skárra en tvö þúsund. Þegar ég gekk út af þessum stað fann ég til tilfinninga gagnvart matarverði sem ég hef ekki fundið um langa hríð á Íslandi, ef nokkurn tímann: Innilegrar ánægju með það að þarna skuli kannski vera kominn veitingamaður sem ætlar mögulega að veðja á það að verðlag skipti einhverju máli fyrir viðskiptavinina. Að þeir verði ánægðari með lægra verð. Það væri nýbreytni. Þetta er þó hugsun sem hefur rutt sér til rúms víða erlendis. Almennt finn ég til annarra tilfinninga gagnvart íslenskum verslunarrekstri. Eins og hjá mörgum, held ég, er tilfinningin vantraust. Ég á erfitt með að treysta því að verslun og þjónusta á Íslandi sé rekin með hagsmuni neytenda að leiðarljósi. Það er eins og annað ráði för. En hvað um það. Ég á skorpinn enda af súrdeigsbrauði heima. Sel hann á 350 kr. og málið er dautt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“