fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

Ljósmæður leggja skóna á hilluna – „Orð fá ekki lýst sorginni í hjarta mínu“

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 1. júlí 2018 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á annan tug uppsagna ljósmæðra taka gildi í dag, en alls hafa 23 ljósmæður sagt upp störfum hjá LSH. Hinar uppsagnirnar taka gildi í október.

Í gær birtu þær ljósmæður sem luku störfum sínum í gær myndir og skilaboð á Facebooksíðum sínum. Myndirnar eru allar samsvarandi: vinnuskór þeirra og starfsmannaskírteini á LSH, auk eftirfarandi skilaboða:

BÚIN AÐ STIMPLA MIG ÚT AF LANDSPÍTLA.
LJÓSMÓÐIR LEGGUR SKÓNA Á HILLUNA!
Mér er hugsað til allra þeirra kvenna/para sem eiga von á barni nú í sumar. Þær/þau eiga ekki að þurfa upplifa það óöryggi sem nú blasir við, um að fá ekki þá þjónustu sem þau eiga skilið og ljósmæður vilja svo sannarlega veita þeim.
Mér er hugsað til þeirra ljósmæðra sem eftir verða, þær standa vaktina í von og óvon um hvort þær nái að sinna þeim konum/pörum sem til þeirra leita.
ÁBYRGÐIN ER RÍKISVALDSINS!!

Síðasta samningafundi ljósmæðra við samninganefnd ríkisins lauk rétt eftir hádegi síðastliðinn fimmtudag. Engin sátt náðist á þeim fundi og hefur næsti fundur verið boðaður á fimmtudag, 5. júlí næstkomandi.

„Samninganefnd ríkisins lítur svo á, að mér skilst, að viðræður séu á byrjunarpunkti eftir að samningur var felldur. Okkur þýkir þa náttúrulega mjög alvarlegt í ljósi stöðunnarog þess sem á undan er gengið,“ segir Katrín Sif Sigurgeirsdóttir formaður samninganefndar ljósmæðra í viðtali við MBL eftir að fundinum lauk á fimmtudag.

Atkvæðagreiðsla er í gangi hjá ljósmæðrum um yfirvinnuverkfall og stendur hún til dagsins í dag. „At­kvæðagreiðslan stendur fram á sunnudag og ef niðurstaðan er sí að félagsmenn samþykkja eins og vilji félagskvenna hefur bent til, þá munum við bera út verkfallsboðun á mánudaginn. Verkfall mun þá að öllum líkindum hefjast um miðjan næsta mánuð,“ segir Katrín Sif.

Nokkrar af ljósmæðrunum bæta persónulegum skilaboðum við.

María Egilsdóttir – „Þegar hurð lokast opnast gluggi segja þeir ! Bless LSH“

Ella Björg Rögnvaldsdóttir – „Ps. þess má geta að LSH kvaddi mig með rúmlega 300 þús kr í laun fyrir júní mánuð. Takk fyrir mig!“

Guðrún Pálsdóttir – „Í 20 ár hefur Landspítalinn verið minn starfsvettvangur. Rétt í þessu stimplaði ég mig út í síðasta skipti. Orð fá ekki lýst sorginni í hjarta mínu. Draumastarfið. Komið að krossgötum en skv. Íslenskri nútímamàlsorðabók eru krossgötur afdrifarík stund í lífi manns. En þegar ég kom út brosti sólin við mér. Vonandi gefur það fögur fyrirheit. #áframljósmæður#égámigsjálf

Margrét Unnur Sigtryggsdóttir – „Ljósmóðirin Margrét Unnur komin á hilluna.
Fokkmerkið á enninu orðið að öri og varanlegur skaði á ljósmóðurhjartanu!!“

Kristín Helga Einarsdóttir – „Draumastarfið lagt á hilluna, búin að stimpla mig út af LSH“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðamann sem rann um 4 metra niður bratta

Björgunarsveitir aðstoðuðu ferðamann sem rann um 4 metra niður bratta
Fréttir
Í gær

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hillary Clinton ætlar að tilnefna Trump til friðarverðlauna Nóbels að uppfylltum ákveðnum skilyrðum

Hillary Clinton ætlar að tilnefna Trump til friðarverðlauna Nóbels að uppfylltum ákveðnum skilyrðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bílabúð Benna lækkar verð á nýjum bílum

Bílabúð Benna lækkar verð á nýjum bílum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega