Sérsveitarmenn sigu inn um svalir á íbúð í Engihjalla í Kópavogi í gærkvöldi. Samkvæmt Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var verið að afvopna mann sem hafði ógnað öðrum með eggvopni. Mikill viðbúnaður var í Engihjalla á níunda og tíunda tímanum í gærkvöldi, voru þrír lögreglubílar, tveir sérsveitarbílar og sjúkrabíll. Aðgerðinni lauk á tíunda tímanum.
DV hefur undir höndum myndband sem sýnir sérsveitarmenn fara inn um svalirnar til að afvopna manninn. Myndbandið má sjá hér að neðan:
[videopress kH2LEnqh]