fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Rocky Horror á íslensku sviði: Þá og í dag

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 22. apríl 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sýningin The Rocky Horror Show er í fullum gangi í Borgarleikhúsinu við góðar undirtektir. Þessi frægi og kostulegi söngleikur hefur lengi verið vinsælt viðfangsefni hjá leikhúsum. Sýningin er nú sett upp í Borgarleikhúsinu en margir Íslendingar muna eftir sýningunni sem Baltasar Kormákur setti upp í Loftkastalanum árið 1995. Leikhópurinn þá var alls ekkert síðri en sá sem prýðir sviðið í Borgarleikhúsinu í dag. Skoðum hverjir gegndu hvaða hlutverkum fyrir 18 árum síðan.

Páll Óskar hefur svo sannarlega farið um víðan völl síðan hann lék Frank-N-Furter í uppsetningu Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1991. Söngvarinn hefur sérhæft sig bæði í ballöðum og stuðlögum, plöturnar seljast enn eins og eldheitar lummur og ávallt áreiðanleg aðsókn á tónleika hans og dansleiki.

1995 – Helgi Björnsson

Helgi steig aftur á sviðið árið 1995 eftir góða fjarveru þegar hann hreppti hlutverk Frank-N-Furters. Ferill hans hefur verið pakkaður og fjölbreyttur í gegnum árin og heldur skemmtikrafturinn upp á sextugsafmæli sitt á þessu ári, með risatónleikum í Laugardalshöll í september.

 

Rocky

Arnar Dan Kristjánsson

2018 – Arnar Dan hóf störf hjá Borgarleikhúsinu strax eftir að hann útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands. Í kjölfarið hefur hann farið með hlutverk í ýmsum sýningum, þar á meðal í Línu langsokk og Mamma Mia!

1995 – Björn Ingi Hilmarsson

Björn Ingi hefur haldið sér uppteknum á sviðinu bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hann hefur sett upp barnasýningar og starfar í fræðsludeild Þjóðleikhússins.

 

Brad

2018 – Haraldur Ari Stefánsson

Fyrsta stóra tækifæri Haralds Ara var stórt hlutverk í unglingamyndinni Óróa frá 2010. Fimm árum síðar útskrifaðist hann úr The Royal Central School of Speech and Drama í London og hefur tekið þátt í fjölda stuttmynda og tónlistarmyndbanda.

 

1995 – Hilmir Snær Guðnason

Árið 2000 hlaut Hilmir Snær Stefaníustjakann fyrir leiklistarstörf sín en hefur í gegnum árin hlotið Grímuverðlaun og Edduverðlaun auk þess að hafa hlotið Menningarverðlaun DV í leiklist fyrir titilhlutverkið í Hamlet. Nýlega sást til hans í kvikmyndinni Fullir vasar og verður hægt að sjá hann á næstunni í vísindaskáldsögunni South of Hope Street og The Velvet Gentlemen, en báðar myndir eru eftir leikstýruna Jane Spencer.

 

Janet

2018 – Þórunn Arna Kristjánsdóttir

Þórunn útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og var þá ráðin til Þjóðleikhússins. Hún hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Hæ Gosi og Stelpurnar og í kvikmyndunum Málmhaus og Blóðberg. Þórunn fór jafnframt með hlutverk í sýningunni H an incident í Belgíu. Þórunn var tilnefnd til Grímuverðlauna árið 2013 fyrir aðalhlutverkið í Karma fyrir fugla og sömuleiðis söngvari ársins 2016 fyrir sýninguna Mamma Mia!

 

1995 – Valgerður Guðnadóttir

Valgerður hefur hlotið Grímuna og Íslensku leiklistarverðlaunin, sem Söngvari ársins 2009 fyrir hlutverk sitt sem María í Söngvaseiði. Valgerður var einn söngvaranna í Perluportinu hjá Íslensku óperunni 2011 og söng hlutverk Mercedes í Carmen haustið 2013. Þar að auki er hún lykilmeðlimur Óperudrauganna, sem verða með sína þriðju nýárstónleika í Hörpu þetta ár.

 

Riff-Raff

2018 – Björn Stefánsson

Björn Stefánsson, betur þekktur sem Bjössi í Mínus, hefur lengi starfað sem tónlistarmaður og þá helst sem trommuleikari. Björn útskrifaðist frá leiklistarskólanum Film og Teaterskolen Holberg og hefur verið að spreyta sig mikið í leiklist að undanförnu, þar á meðal í kvikmyndinni Rökkur og mun næst sjást áberandi í nýjasta verki Baldvins Z, Lof mér að falla.

 

1995 – Björn Jörundur Friðbjörnsson

Stofnmeðlimur og söngvari hljómsveitarinnar Ný dönsk. Í leiklist er Björn Jörundur hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í Sódómu Reykjavík og Englum alheimsins. Björn vakti einnig athygli í fyrra með sjónvarpsþáttunum Líf eftir dauðann, þar sem hann lék miðaldra poppara og Eurovision-lagahöfund.

 

Sögumaður

2018 – Valur Freyr Einarsson

Valur Freyr hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í sviðssýningunni Tengdó auk þess að vera valinn leikskáld ársins 2012, en meðal sviðsverkefna Vals má nefna Litlu hryllingsbúðina, Elsku barn, Dúkkuheimili, Njálu og Af ástum manns og hrærivéla, sem hann leikstýrði.

1995 – Davíð Þór Jónsson

Skemmtikrafturinn, rithöfundurinn og fyrrum Radíusbróðirinn Davíð Þór er prestur í Laugarneskirkju. Hann er útskrifaður guðfræðingur og hefur gegnt mörgum starfstitlum í gegnum árin. Hefur hann starfað sem raddleikari, þýðandi, spurningahöfundur og ljóðskáld.

 

Eddie

2018 – Valdimar Guðmundsson

Venjan hefur lengi verið sú að tónlistarmaður leiki mótorhjólagarpinn Eddie í Rocky Horror, en forsprakki hljómsveitarinnar Valdimar hefur vakið mikla lukku síðustu árin sem básúnuleikari, söngvari og lagasmiður.

 

1995 – Sigurjón Kjartansson

Sigurjón hefur lengi verið maður margra titla; tónlistarmaður, útvarpsmaður, handritshöfundur og gamanleikari. Hann er meðlimur íslensku rokkhljómsveitarinnar HAM og var einn af lykilmeðlimum Fóstbræðra og Svínasúpunnar.

Magenta

2018 – Brynhildur Guðjónsdóttir

Ferill Brynhildar hefur gengið eins og í sögu frá því að hún birtist fyrst í litlu hlutverki í íslensku költ-myndinni Nei er ekkert svar. Leikkonan er fædd í Svíþjóð og hóf nám í Guildhall School of Music and Drama í London árið 1998 og lék sitt fyrsta hlutverk á sviði við Royal National Theatre. Brynhildur hlaut styrk úr Minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2008 og er hún handhafi Íslensku bjartsýnisverðlaunanna 2008. Veturinn 2011–2012 var Brynhildur rannsóknarnemandi við Yale School of Drama í Bandaríkjunum þar sem áhersla var lögð á leikritun.

1995 – Halldóra Geirharðsdóttir

Halldóra hefur lengi verið ein af ástsælustu leikkonum landsins og hefur eldmóður hennar til leiklistar ekkert minnkað frá því hún útskrifaðist úr leiklistarskóla Íslands árið 1995.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum