fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fréttir

UNICEF hringja í fólk og vilja komast í erfðaskrárnar: „Þú mætir bara til lögfræðingsins og gengur frá þessu“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 20. apríl 2018 11:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, er um þessar mundir að reyna að fá styrktaraðila sína til að gefa þeim svokallaðar erfðagjafir. Hringt er í fólk og jarðvegurinn kannaður fyrir gjafir af þessu tagi, undir rós vitaskuld.

Algengt er að fólk ráðstafi hluta arfs til einhverra samtaka og flest góðgerðarsamtök lýsa því yfir að þau taki við slíkum gjöfum með hlýhug. Að haft sé beint samband við fólk með þessum hætti eru hins vegar aðferðir sem þekkjast víða í sértrúarsöfnuðum og hafa verið taldar vafasamar.

Lögfræðingar samtakanna sjá um erfðaskrána

Guðrún Ögmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur tekið þátt í mörgum góðgerðarverkefnum.

UNICEF auglýsa erfðagjafir nú mjög áberandi á heimasíðu sinni. Á forsíðunni er viðtal við Guðrúnu Ögmundsdóttur, fyrrverandi þingmann og heimsforeldri til tíu ára, þar sem hún segist hafa tekið ákvörðun um að gefa erfðagjöf og hvetur aðra til að íhuga möguleikann. Erfðagjafir séu af öllum stærðum og gerðum og háar sem lágar upphæðir skipti máli. „Það er ekki verið að tala um að gefa íbúðir eða slíkt, heldur bara hluta af arfi, ákveðna upphæð eða prósentu.“ Enn fremur:

„Starfsfólk UNICEF leiðir mann algjörlega í gegnum þetta frá upphafi til enda og manni býðst ókeypis lögfræðiþjónusta til að gera erfðaskrána. Þannig að þetta er mjög einfalt, maður mætir bara til lögfræðingsins og gengur frá þessu.“

 

Þurfti að huga að eilífðinni

Kona á sextugsaldri, sem hefur verið styrktaraðili lengi, fékk hringingu frá samtökunum og varð nokkuð bilt við. Í samtali við DV segir hún: „Þetta var mjög kurteisislegt símtal sem ég fékk og ekki spurt beint út. Það var eins og það væri verið að kanna jarðveginn fyrir því hvað mér þætti um að þeir spyrðu beint. Þetta var milt orðalag. Ég stend með UNICEF alla leið og búin að gera það í 10 ár.“

Nú ert þú á besta aldri. Hvernig varð þér við að fá svona hringingu?

„Það var einmitt það sem mér fannst vera skrítið. Þetta setti mig í þau spor að þurfa að huga að eilífðinni.“

Á Facebook skapaðist nokkur umræða um þetta. Ein kona spurði hvaða samtök væru svo djörf að spyrja svona. Önnur sagði þetta vera „græðgi og dónaskap“.

 

Ræða ekki við lögerfingja

Esther Hallsdóttir

Esther Hallsdóttir, verkefnisstjóri í fjáröflun hjá UNICEF, sér um þetta verkefni. Í samtali við DV segir hún: „Það hefur alltaf verið möguleiki fyrir fólk að gefa erfðagjafir til UNICEF og annarra góðgerðarfélaga. En við höfum fundið fyrir auknum áhuga á upplýsingum um þennan möguleika undanfarið og við vildum koma til móts við það. Þess vegna erum við núna að kanna viðhorf stuðningsaðila okkar um hvers konar upplýsingar væru gagnlegar fyrir þá sem vilja kynna sér erfðagjafir.“

Hringið þið þá í alla sem eru heimsforeldrar?

„Við höfum verið að hringja í afmarkaðan hóp fólks. Fólk á öllum aldri sem hefur stutt okkur lengi og þekkir samtökin. Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við þessu og fólk er almennt jákvætt gagnvart þessum möguleika.“

Nú getur fólki brugðið við að fá svona símtal. Er þetta ekki vandmeðfarið?

„Jú. Þetta er auðvitað persónulegt málefni og getur verið viðkvæmt. Við viljum ekki að neinum líði óþægilega þegar við hringjum í þá.“

Esther segir að það sé allur gangur á því hversu stórar gjafir fólk gefi UNICEF með erfðaskrá sinni, samtökin fái bæði stórar og smáar upphæðir. Það fari til dæmis eftir því hvernig fólk stendur. Í langflestum tilfellum sé um ákveðna prósentu af arfi að ræða. Samkvæmt íslenskum lögum geti fólk ekki ráðstafað meira en einum þriðja eigna sinna með erfðaskrá ef viðkomandi á maka eða börn. Flestir gefi þá einhvern hluta af þessum þriðjungi.

Getur þetta ekki valdið deilum við lögerfingja viðkomandi þar sem þið hafið samband að fyrra bragði?

„Auðvitað getur þetta verið það. Það er mjög mikilvægt að allir tali saman og séu sáttir þegar svona ákvörðun er tekin.“

Ræðið þið við lögerfingja, til dæmis ef um stórar upphæðir er að ræða?

„Við tölum aðeins við þann sem leitar til okkar en hvetjum fólk til að tala við fjölskyldu sína áður en það ákveður þetta.“

 

Mikið í húfi

Erfðagjafir geta verið mikil búbót fyrir góðgerðarsamtök og önnur félagasamtök. Sem dæmi arfleiddi kona að nafni Kristín Björnsdóttir Krabbameinsfélag Íslands og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að stærstum hluta eigna sinna í desembermánuði árið 1996. Fékk hvort félagið rúmlega 26 milljónir króna í sinn hlut og var féð varðveitt í sjóðum í hennar nafni. Árið 2002 arfleiddu öldruð hjón Krabbameinsfélagið að íbúð sinni og öllum eignum, metið á 29 milljónir króna. Vorið 2007 arfleiddi iðnverkamaður Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri að 25 milljónum sem var varið í tækjakaup og búnað handa sjúklingum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Terence Stamp látinn
Fréttir
Í gær

Segir eldri borgara flýja Reykjavík vegna bílastæðaskorts

Segir eldri borgara flýja Reykjavík vegna bílastæðaskorts
Fréttir
Í gær

Kristinn Örn lést vegna hitaslags á Spáni – „Strákurinn sem gaf ljós og gleði alls staðar þar sem hann kom“

Kristinn Örn lést vegna hitaslags á Spáni – „Strákurinn sem gaf ljós og gleði alls staðar þar sem hann kom“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Styttist í leiðtogafundinn í Alaska – Verður samið um eftirgjöf á landi?

Styttist í leiðtogafundinn í Alaska – Verður samið um eftirgjöf á landi?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vekur athygli á hvimleiðum ósóma ferðamanna – „Þessari áráttu að ferðast og skilja eftir sig subbuskap“

Vekur athygli á hvimleiðum ósóma ferðamanna – „Þessari áráttu að ferðast og skilja eftir sig subbuskap“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“

Íbúar á Þórshöfn kvarta sáran undan hávaða og mengun – „Ég get ekki sætt mig við það að þetta sé komið til að vera svona í framtíðinni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði er starfsmaður Múlaborgar

Hinn grunaði er starfsmaður Múlaborgar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Helga stendur enn í stappi við Reykjavíkurborg – „Við höfum sýnt mikinn samstarfsvilja“

Helga stendur enn í stappi við Reykjavíkurborg – „Við höfum sýnt mikinn samstarfsvilja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stefán Kristjánsson látinn

Stefán Kristjánsson látinn