fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fréttir

Skimunarsaga fyrir legháls- og brjóstakrabbameini aðgengileg á island.is

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 22. febrúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Konur geta nú skoðað upplýsingar um boðun og eigin þátttöku í skipulegum skimunum fyrir legháls- og brjóstakrabbameinum á vefgáttinni Mínar síður á island.is.

Skimunarsagan er afrakstur samstarfs á milli Krabbameinsfélags Íslands og Þjóðskrár Íslands. Nær hún aftur til ársins 2006 og í henni eru upplýsingar um hvenær kona fékk boð um þátttöku í skimun fyrir krabbameini í leghálsi og/eða brjóstum, hvenær hún mætti og hvar.

Samkvæmt samningi við heilbrigðisyfirvöld sér Krabbameinsfélagið um skimun fyrir krabbameini í leghálsi hjá konum á aldrinum 23-65 ára og fyrir krabbameini í brjóstum hjá konum á aldrinum 40-69 ára. Regluleg þátttaka í skimuninni er meðal annars forsenda þess að greina megi forstig krabbameins í leghálsi og frumstig krabbameins í brjóstum. Það er því mikilvægt að konum sé gert kleift að sjá heildaryfirlit yfir þátttöku sína í skimun.

„Þetta er stór áfangi fyrir íslenskar konur þar sem regluleg mæting kvenna í skimun er afar mikilvægur liður í því að lækka dánartíðni vegna legháls- og brjóstakrabbameins. Það er von Krabbameinsfélagsins að Skimunarsagan verði til þess að auka vitund kvenna og hvetja þær til þátttöku,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.

Hægt er að nota hvort sem er Íslykil eða rafræn skilríki til þess að fá aðgang að Skimunarsögu á mínum síðum á Ísland.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði