fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Sænskur hirðsafnstjóri hlaut virðulegri orðu en Lars Lagerbäck

Erlendir embættismenn fá virðulegri vegtyllur en íslenskt afreksfólk

Steingerður Sonja Þórisdóttir
Mánudaginn 19. febrúar 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

En sænski hirðsafnstjórinn fékk stórriddarakrossinn
Lars Lagerbäck fékk riddarakrossinn En sænski hirðsafnstjórinn fékk stórriddarakrossinn

Mynd: REUTERS/Jorge Silva

Í vikunni var greint frá því að Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefði verið sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu í opinberri heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, til Svíþjóðar. Mörgum þykir Lars Lagerbäck vel að orðunni kominn enda náði hann frábærum árangri með liðið og kom því í fyrsta sinn á stórmót í knattspyrnu.

Stig fálkaorðunnar eru fimm talsins. Keðja ásamt stórkrossstjörnu er virðulegasta stig fálkaorðunnar og er venjan sú að veita hana einungis þjóðhöfðingjum. Þar á eftir kemur stórkrossinn en hann hafa fáir Íslendingar hlotið sem ekki hafa gegnt embætti á vegum ríkisins eða hafa haft beina tengingu við slíkt. Næst er það stórriddarakross með stjörnu og svo án hennar. Að lokum er það riddarakrossinn sem er fyrsta stigið og er það heiðursmerki sem oftast er veitt.

Það getur verið áhugavert að skoða orðuveitingar í gegnum tíðina og fyrir leikmenn virkar oft furðulegt hvernig því er háttað hvaða stig orðunnar er veitt hverjum. Það á sérstaklega við þegar um er að ræða orðuveitingar til fulltrúa erlendra ríkja. Margir erlendir embættismenn hafa hlotið hærri stig orðunnar þrátt fyrir að tengjast Íslandi á engan annan hátt en að hafa kannski komið hingað í opinbera heimsókn ásamt þjóðhöfðingja. Þótt það sé ljóst að stórt hlutverk orðunnar sé einmitt að skiptast á þeim við slík tilefni var það nokkuð sérstakt að sjá að í opinberri heimsókn Guðna í Svíþjóð veitti hann 48 orður á meðan Karl Gústav Svíakonungur veitti aðeins 16 Norðurstjörnuorður, sem eru sambærilegar hinni íslensku fálkaorðu.

Það er varla hægt að deila um það að nánast annað hvert mannsbarn hérlendis þekkir til Lagerbäcks en öllu færri kannast við Margretu Nissar Dalman hirðsafnstjóra sem hlaut stórriddarakross með stjörnu við sama tækifæri.

Franskur verðbréfamiðlari sæmdur riddarakrossi

Hægt er að telja upp fleiri einkennilegar orðuveitingar. Til dæmis hlaut Tommy M. Poulsen, einkaritari Benediktu, systur Margrétar Danadrottningar, stórriddarakrossinn sama ár og hið ástsæla skáld Sigurður Pálsson hlaut einungis riddarakross. Þrír aðstoðarskrifstofustjórar hjá norsku hirðinni hlutu líka stórriddarakross árið 2017 á meðan Tryggvi Ólafsson, einn þekktasti núlifandi myndlistarmaður okkar Íslendinga, varð að sætta sig við riddarakrossinn, sem og Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari sem er flestum íslenskum tónlistarunnendum kunnur.

Baltasar Kormákur fékk riddarakrossinn árið 2007 fyrir framlag sitt til leiklistar og kvikmyndagerðar. Sama ár fékk franski verðbréfamiðlarinn Marc-Adrien Marcellier líka riddarakross og færeyski lögmaðurinn Jóhannes Eidesgaard hlaut stórriddarakross með stjörnu fyrir að styrkja samvinnu Íslands og Færeyja.

Ári síðar fékk myndlistarmaðurinn Ólafur Elíasson riddarakrossinn fyrir framlag sitt til íslenskrar sem og alþjóðlegrar myndlistar en nafni hans handknattleikskappinn Ólafur Stefánsson fékk stórriddarakrossinn fyrir frammistöðu sína sem fyrirliði landsliðsins á Ólympíuleikunum það árið, þar sem liðið hreppti silfrið.

Það er óneitanlega skemmtilegt að bera þetta saman þótt það sé gert meira í gamni en alvöru enda ljóst að orðuveitingarnar eru að mestu notaðar til að styrkja vinskap okkar og annarra ríkja frekar en að verðlauna Íslendinga sjálfa fyrir þeirra ýmsu framlög. Í því samhengi má nefna að Björk Guðmundsdóttur, sem líklega mætti teljast einn allra þekktasti Íslendingurinn, fékk lægsta stig orðunnar, riddarakrossinn, fyrir tónlistarstörf árið 1997. Það er merkilegt miðað við þá gífurlegu landkynningu sem fylgt hefur farsælum ferli hennar úti í heimi að ekki hafi þótt ástæða síðan þá að veita henni hærra stig orðunnar. Sama ár og Björk hlaut orðuna fékk norski skrifstofustjórinn Eva Brugge líka fálkaorðuna en þá þótti riddarakrossinn ekki duga og fékk hún því stórriddarakross með stjörnu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“