Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Bitru að morgni fimmtudagsins 11. janúar síðastliðinn hét Oddur Þór Þórisson. Hann var fæddur 28. maí 1996, búsettur að Hrafntóftum, 851 Hellu. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu stóð fyrir fjölmennu minningarkvöldi að kvöldi sama dags, í húsnæði félagsins, þar sem saman komu félagsmenn og ungmenni úr Árnes og Rangárvallasýslum undir handleiðslu Séra Elínu Kristjánsdóttur