Landspítalinn í Fossvogi, lengst af þekktur sem Borgarspítalinn, lokar á árunum 2023 til 2025 þegar starfsemin flyst á Hringbraut. Bráðadeildin og rannsóknarstofur flytja niður á Hringbraut árið 2023 þegar lokið verður við að byggja tvær nýjar byggingar þar. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu í dag.
Áformað er að hefja framkvæmdir við Hringbraut í sumar. Benedikt Olgeirsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landspítalans segir að flutningurinn verði flétta sem muni taka eitt til tvö ár.
Ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir um hvað eigi að gera við bygginguna í Fossvogi.