fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Köru Kristel var nauðgað 17 ára: „Allt um fötin sem ég var í þegar mér var nauðgað – Steldu lookinu!“

Hjálmar Friðriksson
Miðvikudaginn 29. nóvember 2017 09:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kara Kristel Ágústsdóttir, sem hefur vakið athygli fyrir að tala opinskátt um kynlíf, greinir frá reynslu sinni að hafa verið nauðgað þegar hún var 17 ára. Hún segir áhrifaríka söguna á bloggi sínu. Hún leggur áherslu á að það eigi ekki að skipta máli hvernig hún var klædd en fyrirsögnin á bloggi hennar er:

„Allt um fötin sem ég var í þegar mér var nauðgað – Steldu lookinu!“

Kara segir að hafi verið um miðjan dag sem henni var nauðgað. „Mér var nauðgað 17 ára. 20. mars 2013, á miðvikudegi. Einhverstaðar á milli 15:00-16:00. Ég var þarna hágrátandi með koddann yfir andlitinu, gjörsamlega frosin. Það ætti samt ekki að skipta neinu máli hvar eða hvenær, alls ekki. Bara ekki neinu,“ segir Kara.

Hún segist aldrei hafa skilað skömminni líkt og margar konur hafa gert undanfarin ár. „Ég hef aldrei skilað neinni skömm eins og margar konur hafa verið að gera seinustu ár á Facebook hópum. Því ég hef aldrei verið með skömm yfir því, ég hef alltaf vitað að skömmin sé ekki mín, þetta var ekki mér að kenna, ég bað ekki um að vera nauðgað á neinn hátt, og það hef ég alltaf hugsað og vitað síðan,“ segir Kara.

Þegar hún opnaði sig í fyrsta sinn um ofbeldið, sársaukann, sárnaði henni viðbrögðin. „Fyrsta manneskjan sem ég sagði frá, mjög náin mér. Sagði ég frá um það bil 6 vikum eftir þetta. Þetta er manneskja sem ég treysti, lýt upp til og tek mark á. Svörin sem ég fékk þegar ég opnaði mig fyrir þessari manneskju brutu hjartað mitt, og hjartað mitt er enn örlítið brotið vegna viðbragðanna.

„Ég segi hreint út, í gegnum símann við manneskjuna „mér var nauðgað fyrir 6 vikum“. Hinu megin í símanum heyrist: „Já ókei, varstu full á djamminu? Hvernig varstu klædd?“ Það má vel vera að þessi manneskja hafi svo sagt meira sem var fallegt eða boðið hjálp. En ég bara man það ekki. Því þegar þessar setningar eru sagðar við 17 ára stelpu sem er að opna sig um nauðgun í fyrsta skipti, þá kemst ekkert annað að í hausnum, þessar setningar bergmáluðu í hugsunum mínum í marga mánuði,“ segir Kara.

Kara greinir frá því að hún tárist við að skrifa um reynslu sína af viðbrögðunum. „Ég táraðist við að skrifa þessar setningar, ekki vegna þess að mér var nauðgað, heldur vegna þess að það er svo ótrúlega sárt að þetta hafi verið og sé viðmótið. Eftir þetta þá sagði ég örfáum, ég get í raun talið það á einni hendi hversu mörgum ég hef sagt frá þessu, og alls ekki útaf skömm. Heldur nákvæmlega útaf viðbrögðum fyrstu manneskjunnar. Ég kærði ekki, kæran hefði aldrei farið í gegn og ég verið kölluð lygari og það var rússíbani sem ég nennti ekki í,“ segir Kara.

Kara segir að lokum að útlit fólks bjóði aldrei upp á að viðkomandi sé nauðgað:

„Og ég vona að einn daginn sé fólk hætti að spyrja stelpur spurninga eins og ég fékk. Sama hvað við gerum, sama hvernig myndir fara á Facebook, sama í hvaða fötum við erum, sama hvernig við erum málaðar, sama hversu sætar við erum, sama hversu ljótar við erum, sama hvort við skrifum um kynlíf. Sama hversu fullar við erum. Sama hvar við erum. Það er aldrei neinn að biðja um nauðgun. Aldrei.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta