Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, lenti í heldur sérstökum aðstæðum á dögunum í Vesturbæjarlauginni en þar gekk hann í flasið á karlmanni sem var að rúnka sér í saunabaðinu. Hann var svo forviða að hann spurði félaga sinn, Felix Bergson, álits.
„Er þetta saunabað í Vesturbæjarlauginni homma eða ekki homma? Það var nefnilega einhver Breti þarna áðan með svo bullandi búðing sem hann togaði í að ég var næstum búinn að hneykslast fyrir gjörvalla hönd ekki-homma. Er ekki hægt að láta hommagesti fá ný gögn um núverandi status á þessu sauna, eða var þetta einskonar dorg og von um að eitthvað „biti á“. Með von um skýr svör svo ég hreinlega þori þarna inn aftur! Með kveðju, þinn því miður ekki-hommavinur Gunni,“ skrifar Dr. Gunni í gær á Facebook-vegg Felix og bætti við hvort það væri ekki hægt að væla í dagskrárstjóra RÚV um að fá nýja þáttaröð af Popppunkt næsta sumar.
Dr. Gunni vísar þar í opið leyndarmál að gufubaðið í Vesturbæjarlauginni hafi lengi verið vettvangur skyndikynna meðal samkynhneigðra karlmanna. DV fjallaði um slík skyndikynni í maí en ein helsta ástæðan fyrir þessu er að mælt er með lauginni í Spartacus, ferðahandbók samkynhneigðra.
Að sögn þeirra sem þekkja til hefur skyndikynnamenningin þó nær alfarið færst í netheima í seinni tíð. Öskjuhlíðin virðist þó enn njóta talsverða vinsælda ef marka má lokaðan Facebook-hóp, Dogging á Íslandi, þar sem menn tilkynna komu sína í hlíðina.
Sjá einnig: Leynilegur heimur skyndikynna í íslenskum sundlaugum: „Er til í að láta horfa á mig fitla við mig“
Felix Bergsson svarar Dr. Gunna í löngu og ljóðrænu máli. „Ég tek fulla ábyrgð á þessum dónalega dorgandi Breta og vanillubúðingnum hans. hann er greinilega einn af oss en hefur algjörlega misskilið leitandi og opið augnaráð þitt sem tilraun til viðreynslu. Sorry, svona Bretar þekkja bara ekki organdi heterósexúalitet þegar þeir sjá það! Þeir eru líka svo spenntir fyrir svona fitli á „hættulegum“ stöðum. Við vitum nú hvernig fór fyrir Georgi okkar Mækel, blessuð sé minning hans,“ segir Felix.
Felix þekkir söguna um Spartacus en segir þó að skyndikynnin fari helst fram í símum nú. „Jú vissulega var sánan í Vesturbæjarlaug staður þar sem hommar hittust og kynntust, jafnvel leitandi að skyndikynnum sem þá fóru jafnan fram á einhverjum allt öðrum stað en í sánunni sjálfri. Slíkar aðfarir eru auðvitað fáránlegar í sánu sem er ætluð öllum… eða sko köllum.. sánan var raunar á listum í erlendum bókum þar sem hommar gátu fundið staði þar sem þeir áttu möguleika á að hitta aðra homma.
„Þess vegna koma menn gjarnan við ef þeir eru í heimsókn á Íslandi. Það hefur mjög dregið úr þessari aðsókn hommanna, einfaldlega vegna þess að menn eru að hittast á öðrum vettvangi t.d. inni í símunum sínum en ég fer nú stundum þangað með mínum og þá hittum við gjarnan einhverja úr okkar gamla vinahópi, eða jafnvel einhverja erlenda stráka og úr verður hin notalegasti hittingur. Þá er gjarnan farið yfir hvað hefur drifið á daga manna og jafnvel tæpt á pólitíkinni áður en maður skellir sér í pottinn. Ég hef ekkert orðið var við aðrar aðfarir en hef að vísu ekki rekist á þennan Breta sem sýndi þér þessa ástleitni. Ef ég sé hann skal ég skamma hann! Það ætti enginn að vera að toga í búðinginn sinn fyrir framan minn góða vin og heterósexúalista!,“ segir Felix.