Síðustu andartökin í lífi 22 ára stúlku sem ánetjaðist fíkniefnum ung
Cheryl Towery, móðir tuttugu og tveggja ára stúlku í Detroit í Bandaríkjunum, birti átakanlega mynd af síðustu andartökum dóttur sinnar, Elaina Towery, sem féll í dá eftir að hafa innbyrt of stóran skammt af eiturlyfjum.
Elaina hafði barist við eiturlyfjafíkn um nokkurt skeið, en hún fannst meðvitundarlaus inni á salerni Burger King-veitingastaðar í Detroit á fimmtudag. Talið er að hún hafi sprautað sig með fentanýlblönduðu heróíni með fyrrgreindum afleiðingum.
Elaina var haldið sofandi í öndunarvél í kjölfarið en læknum þótti ljóst að hún myndi aldrei ná bata. Í gær var öndunarvélin tekin úr sambandi og var Elaina úrskurðuð látin í kjölfarið. Í frétt breska blaðsins Independent segir Cheryl að hún voni að myndin, sem birtist með fréttinni, veki fíkla, aðstandendur þeirra og fólk almennt til umhugsunar um þá dauðans alvöru sem neysla harðra fíkniefna er.
Í frétt Independent kemur fram að Elaina, sem lætur eftir sig fimm ára son, hafi barist við fíkniefni í sjö ár og á þeim tíma tekið of stóran skammt fimm sinnum. Hún ánetjaðist heróíni eftir að hún byrjaði með manni sem beitti hana meðal annars líkamlegu ofbeldi.
„Hún á fimm ára son sem hún lét frá sér vegna fíknarinnar. Hún vildi að hann væri á betri stað en hún,“ sagði Cheryl í samtali við Fox-fréttastofuna. Hún segir að hennar versta martröð hafi ræst þegar hún kom að dóttur sinni á sjúkrahúsinu.
Talið er að 25 mínútur hafi liðið frá því að Elaina fór í öndunarstopp þar til starfsfólk veitingastaðarins kom að henni. Líffærin, eitt af öðru, fóru að gefa sig um helgina og á mánudag sýndi heilalínurit enga virkni.
„Hún er eina dóttir mín, minn besti vinur. Hún átti að byrja í nýju starfi í dag, nú er hún í öndunarvél,“ sagði móðir hennar, Cheryl, áður en Elaina lést. Hún sagði að hún myndi berjast hatrammlega fyrir því að koma í veg fyrir að fleiri hljóti sömu örlög og dóttir hennar.