United Silicon hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna eldsvoðans sem varð í kísilmálmverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík í nótt. Segir í tilkynningunni að starfsmenn hafi brugðist hárrétt við þeim aðstæðum sem komu upp og ekki hafi þurft á hjálp slökkviliðs að halda.
Tilkynningin er svohljóðandi:
„Þegar starfsmenn United Silicon unnu við töppun og útsteypingu kísilmálms síðastliðna nótt yfirfylltist deigla með þeim afleiðingum að bráðinn málmur lenti á gólfi verksmiðjunnar. Þegar heitur málmurinn lenti á gólfi verksmiðunnar gaus upp talsverður reykur í verksmiðjubyggingunni. Starfsmenn brugðust hárrétt við, slökktu á ofni verksmiðjunnar, rýmdu verksmiðjubygginguna og óskuðu aðstoðar slökkviliðs. Ekki kom til aðstoðar slökkviliðs því starfsmenn náðu sjálfir tökum á ástandinu og ekki var um eld að ræða heldur að slöngur og rafmagnsbúnaður hafði bráðnað af völdum hita frá málminum. Menn frá slökkviliði og lögreglu voru á staðnum þar til ástand var tryggt.“
„Það sem máli skiptir er að allir starfsmenn brugðust hárrétt við aðstæðum og enginn þeirra meiddist. Þeir eiga þakkir skildar svo og slökkvilið og lögregla sem brugðust fljótt við og aðstoðuðu starfsmenn á vettvangi.
Skemmdir hafa ekki verið metnar ennþá og því ekki hægt að segja til um hversu miklar þær eru.“