Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor sendi á dögunum tölvupóst á alla samstarfsmenn sína við Háskóla Íslands þar sem hann auglýsti áskrift að afmælisriti félaga síns, Jóns Steinars Gunnlaugssonar, fyrrverandi hæstaréttardómara.
Í tölvupóstinum segir að Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt vilji vekja athygli á ritinu, sem verður gefið út af Bókaútgáfunni Codex á sjötugsafmæli Jóns Steinars næstkomandi september. Rannsóknarsetrið hefur gefið út fjölda rita og haldið viðburði sem eiga það sammerkt að tengjast hægristefnu. Hannes og Jón Steinar hafa verið félagar og bandamenn um áratugaskeið en báðir voru í Eimreiðarhópnum svokallaða á áttunda áratug síðustu aldar.