fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar farið af stað

Vinnustundum starfsmanna fækkar úr 40 í 36 klukkustundir

Kristín Clausen
Föstudaginn 10. mars 2017 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir vinnustaðir hafa verið valdir til að taka þátt í tilraunaverkefni ríkisins og BSRB um styttingu vinnuvikunnar. Markmiðið verkefnisins er að kanna hvort stytting vinnuviku leiði til gagnkvæms ávinnings starfsmanna og viðkomandi vinnustaða.

Mikill áhugi var fyrir þátttöku í verkefninu en niðurstaðan varð sú að þeir vinnustaðir sem hefja tilraunina að þessu sinni eru Lögreglustjórinn á Vestfjörðum, Ríkisskattstjóri, Útlendingastofnun og Þjóðskrá. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu.

Tilraunaverkefnið mun standa í eitt ár, frá 1. apríl næstkomandi til 1. apríl 2018. Vinnustundum starfsmanna verður fækkað úr 40 á viku niður í 36 stundir án þess að til launaskerðingar komi. Rannsakað verður hver áhrif styttingar vinnutímans verða á gæði og hagkvæmni þjónustu sem vinnustaðirnir veita, auk áhrifa á vellíðan starfsmanna og starfsanda. Sambærilegar mælingar verða gerðar á vinnustöðum þar sem vinnuvikan verður óbreytt til að fá samanburð.

Verkefnið kemur í kjölfar viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar 28. október 2015 í tengslum við gerð kjarasamninga ríkisins við aðildarfélög BSRB. Samkvæmt yfirlýsingunni skal sérstaklega skoðað hvernig megi útfæra styttingu vinnutíma hjá ólíkum tegundum stofnana, þar á meðal þar sem unnin er vaktavinna.

Af þeim fjórum stofnunum sem nú hefja þátttöku í verkefninu er einn vaktavinnustaður. Unnið verður að því að bæta öðrum vaktavinnustað inn í verkefnið til að niðurstöður þess endurspegli fjölbreytni starfa hjá ríkinu.

Starfshópur um tilraunaverkefnið er skipaður fulltrúum velferðarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og BSRB. Hlutverk hópsins er m.a. að velja vinnustaði til þátttöku í tilraunaverkefninu og meta árangur þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd