fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Hótelmergðin í miðbænum

Fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu tvöfaldast á áratug og eru þau 50 í dag – 44 eru í Reykjavík og þar af 27 í 101 Reykjavík – Miðbærinn kominn að þolmörkum, segir borgarstjóri

Ritstjórn DV
Föstudaginn 24. febrúar 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu hefur tvöfaldast á rúmum áratug. Á höfuðborgarsvæðinu nú eru 50 hótel, með 4.672 herbergi og 9.692 rúm. Af þessum 50 hótelum eru 44 í Reykjavík. Af þessum 44 hótelum í Reykjavík eru 27 í 101 Reykjavík. Eru þá ótalin fjöldamörg gistiheimili, hostel og önnur minni gistirými á þessu svæði sem og leyfislaus gistirými sem starfrækt eru víða á höfuðborgarsvæðinu.

Hóteluppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu er hvergi nærri lokið, enn eru stór hótel í byggingu. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg eru nú 22 þekkt hótelverkefni til viðbótar á hinum ýmsu stigum framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu, langflest þeirra í Reykjavík. Borgarstjóri Reykjavíkur er sammála því að miðbærinn sé kominn að þolmörkum. Unnið sé markvisst að því nú að beina hóteluppbyggingu annað og dreifa álaginu betur því borgaryfirvöld vilji ekki að hótelin verði öll á sama stað.

Í ferðamannasprengju síðustu ára hefur þörfin fyrir hótel og gistirými aukist gríðarlega og þegar uppbyggingin gerist svo hratt, á tiltölulega skömmum tíma, þá hafa breytingarnar verið bæði sýnilegri og áþreifanlegar fyrir íbúa og vegfarendur viðkomandi svæða, eins og miðborgarinnar. Á meðan ferðaþjónustuaðilar sjá enn tækifæri til að mæta eftirspurn með fjölgun hótela og gistirýma þá eru þó margir á því að of mikið sé komið af því góða á kostnað íbúðabyggðar og verslunar.

Hótelin á höfuðborgarsvæðinu í hnotskurn

Hótelin á höfuðborgarsvæðinu í hnotskurn

Fjöldi hótela nú: 50

Fjöldi hótela í árslok 2015: 44

Fjölgun milli 2015 og 2016:13,6%

Fjöldi hótela árið 2005: 25

Fjölgun milli 2005 og 2016: 100%


Fjöldi herbergja nú: 4.672

Fjöldi rúma nú: 9.692

Nýting herbergja 2016: 85,4%

Nýting herbergja 2015: 78,4%

Nýting rúma 2016: 71,3%

Nýting rúma 2015: 64,1%

Fjölgun hótelherbergja frá ársbyrjun 2015 til ársloka 2016: 37%

Fjölgun rúma frá ársbyrjun 2015 til ársloka 2016: 35%


Hótel á Íslandi alls: 120

Hótel á höfuðborgarsvæðinu: 50

Hótel í Reykjavík: 44

Hótel í 101: 27 (61% hótela í Reykjavík)

Svona hefur þeim fjölgað

DV ákvað því að skoða og setja upp með myndrænum hætti hótelin á höfuðborgarsvæðinu, og þá sérstaklega í og við miðborgina, sem og sýna einnig fram á hversu ör uppbyggingin hefur verið á umliðnum árum.
Fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu var í árslok 2015 44, en nú eru þau orðin 50. Það gerir fjölgun um 13,6% milli ára.

Sé litið enn lengra aftur í tímann, aftur til ársins 2005, þegar ástandið var allt annað en nú og menn voru m.a. að glíma við fækkun ferðamanna og sterk króna var að leika ferðaþjónustuna grátt, var fjöldi hótela á höfuðborgarsvæðinu 25. Á rúmum áratug sem liðinn er síðan þá hefur fjöldi hótela því tvöfaldast.

Betri nýting

En það er ekki að ósekju sem verið er að byggja upp hótel og gistirými. Þessi herbergi standa ekki auð allan ársins hring, þökk sé fjölgun ferðamanna. Nýting herbergja og rúma hefur nefnilega verið að aukast, og það talsvert á milli áranna 2015 og 2016.

Sem fyrr segir eru 4.672 hótelherbergi og 9.692 hótelrúm á höfuðborgarsvæðinu núna. Í ársbyrjun 2015 voru herbergin 3.400 en rúmin 7.140. Nýting herbergja var árið 2015 78,4% sem er samkvæmt upplýsingum DV nokkuð umfram þá meðalnýtingu sem kallar á aukna uppbyggingu. Nýtingin var síðan 85,4% í fyrra að meðaltali. Veruleg aukning þar.

Sama má segja um nýtingu rúma. Hún var árið 2015 64,1% en skaust upp í 71,3% árið 2016.

Meðfylgjandi kort segir meira en mörg orð um hversu fyrirferðarmikil hótel eru, sérstaklega í miðbænum. 27 hótel í 101 hverfinu einu og sér, eða 61% allra hótela í Reykjavík, er mikið á ekki stærra landsvæði. Þá eru einnig merkt inn á kortið þau hótel sem stendur til að koma upp á næstu misserum. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, er því sammála að miðbærinn er kominn að hótelþolmörkum.

Ekki lausn að banna – litið til kvóta

„Við höfum fylgst vel með þessari þróun og höfum metið það svo að ef við leyfum ekki hóteluppbyggingu þá eykur það mjög þrýstinginn á húsnæðismarkaðnum, sem er nægur fyrir, vegna þess að þá sækja ferðamenn í auknum mæli í íbúðagistingu. Við þurfum því að gefa leyfi fyrir hótelum til að mæta ferðamannastraumnum en við viljum alls ekki að þau séu öll á sama stað,“ segir Dagur í samtali við DV.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að miðbærinn þoli ekki meiri hóteluppbyggingu en þegar hafi verið samþykkt. Því sé unnið að því að dreifa álaginu.
Komið gott Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að miðbærinn þoli ekki meiri hóteluppbyggingu en þegar hafi verið samþykkt. Því sé unnið að því að dreifa álaginu.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hann segir að því hafi verið settur hótelkvóti á Kvosina sem geri að verkum að engin ný verkefni verði samþykkt þar, umfram það sem þegar hefur verið samþykkt.

„Ný tillaga sem nú er komin í auglýsingu lýtur að hótelkvótum á Laugavegi. Við höfum verið að undirbúa það núna því við viljum tryggja að það verði ekki of mikið af hótelum þar heldur. Við höfum verið að beina hóteluppbyggingunni annað, upp með Suðurlandsbraut, upp í Skeifu, að Grensásvegi og fjárfestar hafa tekið mjög vel við sér í því. Við höfum líka sagt að við myndum fagna því ef hóteluppbygging verður í nágrannasveitarfélögunum en við áttum okkur á því, bara eins og þegar maður er sjálfur ferðamaður þá vill maður gjarnan vera miðsvæðis, þannig að lykillinn að því að dreifa álaginu um höfuðborgarsvæðið er öflugri almenningssamgöngur. Þar kemur þessi stefnumörkun um borgarlínuna, sem er afkastameiri hágæða almenningssamgöngur, inn og það er orðin algjör samstaða milli sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um þetta. Þannig að þetta er heildstæð sýn sem gengur út á að dreifa álaginu betur um leið og við þurfum að vera raunsæ varðandi það að maður stýrir ekki að öllu leyti ákvörðunum ferðamanna. Þeir vilja komast eins nálægt miðborginni og hægt er því þar virðast allir vilja vera.“

Komið að þolmörkum

Aðspurður um hin títtnefndu þolmörk í miðbænum og hvort miðbærinn sé kominn að þeim segir borgarstjórinn:

„Já, það er mín skoðun. Við höfum verið að bera okkur saman við aðrar hraðvaxta ferðaþjónustuborgir í Evrópu og Reykjavík er róttækari en flestar aðrar borgir að þessu leyti. Barcelona setti að vísu á tímabili allsherjar uppbyggingarbann en neikvæðu afleiðingarnar af því var alls konar svört atvinnustarfsemi og íbúðagisting sem hefur bitnað mjög mikið á íbúunum þar. Við höfum því meiri trú á þessum kvótum sem hafa vakið athygli annarra borga vegna þess að það eru ekki margir sem hafa treyst sér til að taka þessi skref.“

Hótel geta verið góðir nágrannar

En nú þegar þrýstingur er til staðar til að dreifa álaginu frá miðbænum og til nærliggjandi svæða, hafa margir ekki farið varhluta af þeirri þróun og margir sem ekki sætta sig við breytta ásýnd síns nærumhverfis. Hvað verður um svæðin í kring og skilur borgarstjóra áhyggjur fólks af því, því um er að ræða fína línu sem feta þarf í þessum efnum svo ferðaþjónustutengdur rekstur gleypi ekki íbúðabyggð þar líka.

„Já, ég skil þær, sérstaklega ef það er óljóst hvar við erum að hugsa þetta. En við erum að benda á svæðin Ármúla, Síðumúla, Skeifuna og Grensásveg sem mega við meiri uppbyggingu og endurfjárfestingu. Húsnæði þar er sumt barn síns tíma og komið á aldur þannig að við sjáum ýmsa möguleika þar og það gæti verið gott fyrir Skeifuna og Grensásveg að fá hótel. Við sjáum þennan þróunarás, úr miðborginni alveg upp á Ártúnshöfða, með öflugum almenningssamgöngum og borgarlínu eftir Laugavegi – Suðurlandsbraut og upp á Ártúnshöfða. Þetta getur verið eitt helsta vaxtarsvæði borgarinnar og mjög skemmtileg borgargata. Þarna geta hótel vel átt heima, þau trufla lítið íbúðabyggðina. Hótel eru alls ekki slæm, nema það sé of mikið af þeim, því þau geta fært með sér veitingastaði, kaffihús og alls konar líf og þjónustu sem nálæg hverfi geta notið. Ef hótel eru í og með, en ekki of yfirþyrmandi, þá geta þau verið frábærir nágrannar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí