fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Fréttir

Fordæma „vanhugsaða forræðishyggju“ Óttars

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 20. febrúar 2017 12:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stjórn Ungra Pírata lýsir yfir miklum áhyggjum af forgangsröðun og áherslum heilbrigðisráðherra í heilbrigðismálum. Þá kemur það okkur algjörlega í opna skjöldu að heilbrigðisráðherra vilji að rafrettur heyri undir sömu lög og almennt tóbak.“

Þannig hefst yfirlýsing frá stjórn Ungra Pírata vegna forgangsröðunar heilbrigðisráðherra í heilbrigðismálum. Í yfirlýsingunni segir:

„Það er af mörgum stórum málum að taka í heilbrigðiskerfinu, en frá árinu 2003 hefur fjársvelti og niðurskurður verið lýsandi fyrir stefnu stjórnvalda. Yfirlýsingar Óttarrs Proppé um að engar stefnubreytingar verði frá þeirri stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur markað veldur stjórn Ungra Pírata áhyggjum og við skorum á ráðherra að einbeita sér að því að auka gæði heilbrigðisþjónustunnar, tryggja velferð sjúklinga og ánægju heilbrigðisstarfsfólks, eins og Píratar lögðu til í aðdraganda alþingiskosninga 2016.“

Segir Píratar að Óttar hafi kosið að eyða tíma sínum frekar í rafrettur og það þrátt fyrir að rannsóknir bendi á að þær séu hættuminni en venjulegar sígarettur. Hafi Óttar lýst yfir að hann vilji flokka þær með hefðbundnu tóbaki.

„Við fordæmum þessa vanhugsuðu forræðishyggju, sem mun væntanlega leiða til þess að færri láti af reykingum en ella og mun því ekki draga úr krabbameinstilfellum. Læknar hafa kallað eftir skýrum reglum, en ekki því að eitt helsta hjálpartæki fólks sem vill hætta að reykja verði hækkað í verði, gert óaðgengilegra og úthýst úr almannarými á svipaðan hátt og hefur verið gert með sígarettur sem þátt í tóbaksvörnum.“

Segir ungir Píratar að tillaga Óttars beri vott um slaka forgangsröðun í heilbrigðismálum.

„Við fordæmum þessa tillögu og skorum á ráðherra að kynna sér rannsóknir í tóbaksvarnamálum betur og forgangsraða rétt í heilbrigðismálum.“

Undir yfirlýsinguna skrifa:

„Dóra Björt Guðjónsdóttir, Ásmundur Guðjónsson, Jóhanna Gísladóttir, Karl Héðinn Kristjánsson og Viktor Orri Valgarðsson.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Enn einn Snapchat-perrinn
Fréttir
Í gær

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum

Sjáðu myndbandið: Sverrir Einar handtekinn og leiddur út í járnum í miðbænum
Fréttir
Í gær

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina

Reiði vegna skemmdarverks á Suðurgötu: Málið verður tilkynnt lögreglu – Sjáðu myndina
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala

Tveir Bretar hætt komnir á Íslandi: Grét þegar hann sagði frá slysinu – Vinur hans enn á spítala
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum