Norðvestan stormur verður á landinu austantil fram eftir degi en mun hægari norðanátt vestantil á landinu. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Kalt er á landinu þennan daginn en útlit er fyrir að hann herði frostið næstu daga. Á hádegi á morgun verðu 6-8 gráðu frost á mestöllu landinu en mun kaldara til fjalla.
Á föstudagsmorgun verður níu stiga frost í Reykjavík, ef marka má spár en enn kaldara á Vestfjörðum og Austfjörðum, þar sem sem frostið nær tveggja stafa tölum. Á hálendinu má gera ráð fyrir um 15-20 stiga frosti.
Kalt verður áfram framan af laugardeginum en svo snýst vindur til suðlægrar áttar, fyrst með snjókomu en svo rigningu. Á sunnudag verður stíf sunnan- og suðaustanátt og rigning sunnan- og vestanlands, en þurrt og bjart norðaustantil á landinu. Hiti verður á bilinu 4 til 12 stig.