Eiríkur Fannar Traustason, sem dæmdur var í 5 ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun í Hrísey, var kominn út fyrir fangelsismúrana skömmu áður en tvíburasynir hans komu í heiminn í lok september. Þetta hefur DV eftir traustum heimildum. Eiríkur fór á Sogn í septembermánuði, sem er opið úrræði en staldraði stutt við eða innan við sólarhring. Þá var hann látinn laus af mannúðarástæðum þar sem ljóst var að unnusta hans ætti í erfiðleikum á fæðingardeild.
Samkvæmt heimildum DV gætir óánægju á meðal sumra fanga að Eiríkur Fannar hafi fengið að nýta sér opið úrræði á Sogni í ljósi þess að hann var dæmdur fyrir hrottalega nauðgun og þá hefur unglingsstúlka kært hann fyrir alvarleg kynferðisbrot. Lögregla hefur lokið rannsókn á því máli. Héraðssaksóknari á svo eftir að ákveða hvort ákæra verði gefin út. Telja fangar sem DV ræddi við í dag að kynferðisbrotamenn njóti forréttinda á ýmsum sviðum, meðal annars þegar kemur að opnum úrræðum og vildu meina að fangar ættu ekki rétt á opnum úrræðum ef mál sem tengdust þeim væru til rannsóknar í kerfinu. Hefur einnig orðið vart við slíka orðræðu á samskiptamiðlum í dag. Um þetta segir Páll Winkel í samtali við DV, aðspurður um hvort heimilt sé að hleypa fanga í opið úrræði þegar önnur kæra vofi yfir:
„Ólokið mál í refsikerfinu koma ekki í veg fyrir flutning í opið fangelsi.“
Þá er ekki ljóst hvort fangelsismálastofnun hafi verið kunnugt um að kæra væri inni á borði lögreglu.
Síðan börnin komu í heiminn 9 vikum fyrir tímann hafa Eiríkur og unnusta hans, Halla Björg Albertsdóttir, eytt töluverðum tíma á vökudeild Landspítalans og gist þess á milli í sjúkraíbúð á vegum spítalans líkt og Halla greinir frá í samtali við DV í dag.
Fyrr í vikunni fóru þau saman í stutta ferð norður en Halla á eldri börn sem hún vill að halda sinni föstu rútínu þrátt fyrir allt sem hefur gengið á. „Það hefur einhver séð hann fyrir norðan og í framhaldinu fór þetta allt af stað,“ segir Halla jafnframt.
Engum, og þar á meðal Arnbjörgu Sigurðardóttur, réttargæslumanni konunnar sem Eiríkur var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað, var tilkynnt sérstaklega um að Eiríkur væri kominn tímabundið á götuna. Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra, segir að Fangelsismálastofnun beri engin lagaleg skylda til að tilkynna hvort einstaka fangar séu í leyfi.
Þá segir Halla Björg í samtali við DV að hún viti ekki hvenær Eiríkur Fannar muni hefja afplánun á ný.
Þegar dómur Hæstaréttar féll yfir Eiríki í júní síðastliðnum hafði hann setið í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna frá því í nóvember 2015, eða nærri því sjö mánuði. Samkvæmt dómnum dregst gæsluvarðhaldsvist Eiríks frá fangelsisrefsingunni.
Samkvæmt öruggum heimildum DV var búið að heimila Eiríki að afplána refsingu sína í opna fangelsinu að Sogni, rétt áður en tímabundna leyfið fékkst og hafði hann aðeins afplánað sólarhring þar innan áður en hann fór út í seinasta mánuði.
Líkt og DV greinir frá í morgun kærði 15 ára stúlka Eirík nú í sumar fyrir endurtekin brot yfir nokkurra mánaða tímabil, fyrri hluta árs 2015, en líkt og fyrr segir átti nauðgunin á tjaldstæðinu í Hrísey sér stað um sumarið. Er umrætt mál nú á borði héraðssaksóknara Reykjavíkur en stúlkan kærði málið í sumar hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra. Rannsókn málsins er lokið og nú bíða stúlkan og fjölskylda hennar eftir fregnum þess efnis hvort formleg ákæra verði gefin út í málinu.
Náinn aðstandandi stúlkunnar segir í samtali við DV að hún hafi tekið fréttunum um að Eiríkur Fannar gangi laus mjög illa og þau eigi erfitt með að skilja af hverju hann hafi yfirhöfuð fengið leyfi. „Hún er búin að loka sig af og grúfir sig bara ofan í sængina. Þetta var mikið áfall fyrir okkur öll.“
Í skriflegu svari til DV vísar Páll í reglugerðir Fangelsismálastofnunar sem lúta að hlé á afplánunarvist fanga:
„Heimilt er að veita hlé á afplánun ef mjög sérstakar ástæður mæla með því og hefur Fangelsismálastofnun veitt hlé nokkrum sinnum svo sem vegna mjög alvarlegra veikinda eða dauðsfalls í fjölskyldu fanga. Hlé á afplánun skal aðeins veitt í algjörum undantekningartilvikum og eru því mjög alvarlegar aðstæður fyrir hendi þegar slík ákvörðun er tekin.
Í þeim tilvikum er Fangelsismálastofnun samþykkir hlé á afplánun fanga eru aðstæður viðkomandi mjög alvarlegar. Það á við án undantekninga. Eðli máls samkvæmt eru þessi mál mjög viðkvæm og varða persónulega hagsmuni. Um slík mál má Fangelsismálastofnun ekki tjá sig.“
Það hefur vakið reiði að Eiríkur Fannar sé frjáls ferða sinna á meðan á leyfinu stendur en í samtali við mbl.is fullyrðir Páll að Eiríkur sé ekki án alls eftirlits. Í samtali við Vísi segist Páll vera í stöðugu sambandi við Eirík.
„Það er aldeilis ekki þannig að viðkomandi sé bara sleppt lausum og svo sé bara ekkert eftirlit. Við setjum mjög ströng skilyrði og það er fylgst mjög vel með því að leyfinu, eða hléinu, sé ráðstafað í samræmi við tilgang þess.
Séu ákvæði um skilyrði í leyfi skoðuð Í lögum um fullnustu refsingu fanga stendur á einum stað:
„Að fangi geri eða fari ekki annað í leyfinu en samræmist tilgangi þess.“ Þá segir á öðrum stað: „Að fangi skuli ekki, ef tillit til brotaþola eða nánustu aðstandenda eða eðli eða grófleiki brotsins mæla með, koma á ákveðna staði eða hafa samband við ákveðna menn í leyfinu.“
Tilgangurinn með að veita Eiríki leyfi var til að hann gæti verið með nýfæddum börnum sínum sem glíma við alvarleg veikindi í Reykjavík. Í höfuðborginni hefur þeim verið úthlutað íbúð. Unnusta Eiríks greinir hins vegar frá því að þau hafi farið saman til Akureyrar en þar á hún börn. Á Norðurlandi býr hins vegar unglingsstúlka sem hafði kært Eirík fyrir nauðgun. Hún vissi ekki að hann væri laus eða á svæðinu.