fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fjármálaráðherra neglir kökubaksturinn

Stjórmálamenn eru til alls vísir í kosningabaráttu – „Það er mikill kærleikur í svona köku“

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 13. október 2016 15:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær birti DV myndband Framsóknarflokksins þar sem Sigurður Ingi Jóhannesson negldi „dabið“. Í fréttinni var skýrt tekið fram að búast mætti við fleiri stjórnmálamönnum að gera skrítna hluti á næstunni og lesendur þurftu ekki að bíða lengi.

Í dag birti Sjálfstæðisflokkurinn nautnalegt myndband af Bjarna Benediktssyni að baka stórglæsilega afmælisköku. Myndbandið hefst á því að fjármálaráðherra birtist, íklæddur svuntu og segir einbeittur: „Það er mikill kærleikur í svona köku, það er ekki spurning.“ Í kjölfarið sést Bjarni skera út sykurmassa í köku sem ætti undir eðlilegum kringumstæðum að vinna til einhverskonar verðlauna.

Í myndskeiðinni gefur Bjarni í skyn að hann hafi hent fjölmargar slíkar kökur, meðal annars af Línu Langsokk eða „bara það sem krökkunum finnst spennandi í það og það skipti“, segir Bjarni. Í myndbandinu greinir hann frá því að hann hafi gaman af ýmiskonar handavinnu eins og kökubakstri og að hnýta flugur. Hann gleymir þó að minnast á garðyrkjuna en internetið fór á hliðina þegar Bjarni birtist með græðling í hönd á dögunum.

Sjón er sögu ríkari:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“