fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fréttir

Öflug skjálftahrina í Kötlu

– Mesta virknin síðan hrinan hófst í gær

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. september 2016 12:50

- Mesta virknin síðan hrinan hófst í gær

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkrir öflugir jarðskjálftar urðu nú í hádeginu í Kötlu en öflug jarðskjálftahrina er þar í gangi. Virknin var sú mesta í hrinunni, samkvæmt Veðurstofu Íslands, en hún hófst morguninn 29 september. Litakóða Kötlu fyrir flugumferð yfir svæðið hefur því verið breytt úr grænu í gult.

Síðasta sólarhringinn hafa 200 skjálftar verið staðsettir í Kötlu en enginn gosórói er þó sýnilegur. Á vefmyndavél Mílu má fylgjast með stöðunni.

Kristín Jónsdóttir, fagstjóri jarðvár á Veðurstofunni, sagði í hádegisfréttum RÚV að vísindamenn standi frekar á gati yfir hrinunni í Kötlu. Ómögulegt sé að segja til um núna hvort hún endi með eldgosi, flóðum eða deyi út.

„Þetta er rosalega öflug hrina sem að hófst upp úr hádegi í gær. Og hún er þarna sunnarlega í Kötluöskjunni og hún er mjög grunnstæð. Við erum búin að mæla nokkra skjálfta sem eru stærri en þrír. Og við erum bara já, frekar á gati yfir þessari stöðu, sem er komin upp núna. Það er náttúrulega langt síðan að Katla gaus og þetta gæti allt eins endað með gosi. En það er bara alveg ómögulegt að segja núna,“ sagði Kristín við RÚV.

„Tækjabúnaður og eftirlit hefur aukist svo mikið upp á síðkastið. Menn eru því ekki alveg viss um hvað þeir eru að horfa á með öllum þessum aukagögnum. En Katla er í gjörgæslu hjá okkur núna og allir eru á tánum.“

Þetta segir vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands í samtali við DV. Hann vill þó árétta að enn séu engin merki um gosóróa.

Uppfært klukkan 13:10

Martin Hensch, vakthafandi jarðskjálftafræðingur segir í skeyti til DV:

,,Rétt eftir hádegi í dag mældust fjórir jarðskjálftar í Kötluöskjunni stærri en 3 að stærð (3,6 kl. 12:07 og 12:09; 3,2 kl. 12:10 og 12:13). Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið en virknin hefur minnkað aftur eftir kl. 12:15. Þetta er stærsti hviða sem mælst hefur síðan hrinan hófst í gær. Enn mælist stöðug smáskjálftavirkni í Kötlu. Vísindaráð Almannavarna ætlar að koma saman kl. 14:00 í dag. Enn eru engin merki um gosóróa.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Borgarfulltrúi Framsóknar segir að krafan um bílastæði sé eðlileg – „Reykjavík er ekki Kaupmannahöfn eða Osló“

Borgarfulltrúi Framsóknar segir að krafan um bílastæði sé eðlileg – „Reykjavík er ekki Kaupmannahöfn eða Osló“
Fréttir
Í gær

Uppnám í Hafnarfirði – Félagi eldri borgara úthýst um næstu áramót

Uppnám í Hafnarfirði – Félagi eldri borgara úthýst um næstu áramót
Fréttir
Í gær

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist

NTÍ skammar sveitarfélög fyrir að skipuleggja hús á hættusvæðum – Tjón á nýlegum byggingum aukist
Fréttir
Í gær

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“

„Meiri lífsgæði og betri heilsa – tækifærin leynast alls staðar“
Fréttir
Í gær

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum

Fyrrverandi fallhlífarhermaður fyrir dóm vegna morða sem áttu sér stað fyrir rúmum 50 árum
Fréttir
Í gær

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“

„Bleika slaufan hefur alltaf snert við mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni

Furðar sig á því að geta fengið íslenskt vodka á lægra verði í Bandaríkjunum en í Fríhöfninni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“

„Ég er með fullt af skoðunum sem stangast á við skoðanir þessa gaurs“