Þrír af níu forsetaframbjóðendum nú skilað gögnum til Ríkisendurskoðunar


Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur bæst í hóp þeirra frambjóðenda til forsetaembættisins í sumar sem skilað hefur fjárhagslegu uppgjöri um kosningabaráttu sína til Ríkisendurskoðunar. Fyrir höfðu þær Guðrún Margrét Pálsdóttir og Hildur Þórðardóttir gert það líkt og DV greindi frá á dögunum.
Níu voru í framboði og eiga sex frambjóðendur því eftir að skila upplýsingum um tekjur og kostnað vegna kosningabaráttunnar eins og lög gera ráð fyrir, séu heildartekjur eða heildarkostnaður yfir 400 þúsund króna. Frambjóðendum ber að skila þessu uppgjöri eigi síðar en þremur mánuðum frá því að forsetakjör fór fram. Enn er því tæpur mánuður til stefnu.
Þegar uppgjörin hafa verið yfirfarin og staðfest af Ríkisendurskoðun, verða þau birt á vef stofnunarinnar.
Í kappræðum forsetaframbjóðenda á RÚV þann 24. júní síðastliðinn sagði Guðni að vel á annan tug milljóna króna hefðu safnast vegna kosningabaráttunnar. Hann kvaðst þó ekki þekkja heildartöluna.