Sjö forsetaframbjóðendur hafa mánuð til að skila fjárhagslegu uppgjöri kosningabaráttu sinnar
Aðeins hafa tveir frambjóðendur af þeim níu sem buðu sig fram til forseta í sumar skilað fjárhagslegu uppgjöri um kosningabaráttu sína til Ríkisendurskoðunar. Þetta eru þær Guðrún Margrét Pálsdóttir og Hildur Þórðardóttir.
Frambjóðendum í kjöri til embættis forseta Íslands ber að skila upplýsingum um tekjur og kostnað vegna kosningabaráttu til Ríkisendurskoðunar. Séu heildartekjur eða heildarkostnaður yfir 400 þúsund króna ber frambjóðanda að skila uppgjöri. Samkvæmt reglum Ríkisendurskoðunar skulu frambjóðendur skila fjárhagslegu uppgjöri kosningabaráttu sinnar eigi síðar en þremur mánuðum frá því að forsetakjör fór fram. Hinir sjö frambjóðendurnir, þar á meðal Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hafa því um mánuð til stefnu.
Þegar uppgjörin hafa verið yfirfarin og staðfest af Ríkisendurskoðun, verða þau birt á vef stofnunarinnar.
Í forsetakosningunum 2012 var forsetaframboð Þóru Arnórsdóttur það dýrasta, en kostnaður við það nam rúmum 15,6 milljónum króna en tekjur framboðsins námu rúmum 16 milljónum.