Ebba Guðný mætti fyrir dóm í Suður-Afríku í morgun
Ebba Guðný Guðmundsdóttir mætti fyrir dóm í Suður-Afríku í morgun í þeim tilgangi að varpa ljósi á það hvernig manneskja spretthlauparinn, Oscar Pistorius, er að hennar mati. Líkt og áður hefur komið fram verður á næstum dögum ákveðið hverskonar refsing bíður Pistorius en hann var fundinn sekur um að hafa orðið kærustu sinni að bana árið 2013.
Fyrst var Pistorius sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en áfrýjunardómstóll í Suður-Afríku breytti dóminum seint á síðasta ári og var Pistorius þá sakfelldur fyrir morð. Minnsta mögulega refsingin fyrir morð er 15 ára fangelsisvist.
Ebba Guðný talaði um vináttu fjölskyldu hennar og spretthlauparans sem hefur reynst þeim einstaklega vel í gegnum árin. Oscar Pistorius fæddist, eins og sonur Ebbu Guðnýjar, fótalaus fyrir neðan hné. Ebba segir Pistorius mikilvæga fyrirmynd fyrir son sinn.
„Vinátta okkar var yndisleg,“ sagði Ebba við réttarhöldin.
Þegar dómarinn spurði Ebbu hvort að Pistorius hefði sérstakan áhuga á syni hennar játaði hún því. Hún benti sömuleiðis á að hann hefði ætíð sýnt eldri dóttur hennar mikinn áhuga og passað vel upp á að hún væri ekki skilin útundan. En Ebba í kjölfarið um að það væri erfitt að vera systkini fatlaðs barns og að Pistorius hefði alltaf verið jafn góður við þau bæði.
Hér má sjá myndband frá því í morgun þegar Ebba sat fyrir svörum í dómsal.