Sigurður Svavarsson útgefandi ávarpaði Guðna Th. á Facebook í gær og spurði hvort ekki væri að verða óbærilega heitt undir feldinum. Benti Sigurður á að áfram væri spáð sól og hita.
Ekki stóð á svari hjá hinum hugsandi mögulega forsetaframbjóðanda. „… en minnist einhver annar framar á þennan bévítans feld er mér að mæta.“ Þessu svari fylgdi raunar broskarl. Svo bætti Guðni við: „Sá kann allt sem bíða kann en vissulega er vor í lofti.“