Komnir á Vernd eftir af hafa afplánað fjórðung dómsins – Ný reglugerð sögð „smíðuð utan um þá“
Kaupþingsmennirnir Sigurður Einarsson, Magnús Guðmundsson og Óalfur Ólafsson losna úr haldi á Kvíabryggju í dag, eftir að hafa afplánað þar dóma sína í um eitt ár. Frá þessu greinir Stundin.
Þeir voru dæmdir fyrir efnahagsbrot í tengslum við Al Thani-málið svokallaða. Fram kemur í fréttinni að þeir verði í dag færðir á áfangaheimilð Vernd, þar sem frelsi þeirra verður meira. Að þeirri vist lokinni fari þeir í rafrænt eftirlit.
Lagabreyting um fullnustu refsinga, sem varð að lögum þann 23. mars síðastliðinn, gerir þetta kleift.
Hæstiréttur dæmdi Sigurð í fjögurra ára fangelsi í fyrra en Magnús og Ólafur fengu fjögurra og hálfs árs dóma.
„Mér fannst þessi lagabreyting ekki tímabær í ljósi stöðunnar varðandi þessa tilteknu fanga. Þetta virtist vera smíðað utan um þá,“ er haft eftir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, nefndarmanni í allsherjarnefnd og þingmanni VG.