fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Svívirðilegt dýraníð: 300 þúsund vilja harðari dóm yfir bræðrum sem misþyrmdu tíkinni Baby

Frankish-bræðurnir fengu skilorðsbundinn dóm – Tíkin Baby var svæfð þremur mánuðum eftir að myndbandið var tekið upp

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 1. apríl 2016 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Myndband af ógeðslegri meðferð tveggja manna, 22 ára og 18 ára, á hundi hefur vakið mikla reiði í Bretlandi og umræðu um harðari refsingar yfir dýraníðingum.

Á umræddu myndbandi, sem sjá má neðst í fréttinni, má sjá annan manninn, Andrew Frankish, henda hundinum niður stiga, traðka ofan á hausnum á honum og henda honum af miklu afli í gólfið. Dýrið virðist lamað af hræðslu meðan á barsmíðunum stendur. Hinn maðurinn, Daniel Frankish, tók dýraníðið upp á myndband og virtust þeir báðir skemmta sér konunglega þegar þeir misþyrmdu dýrinu. Daniel og Andrew eru bræður.

Myndbandið má sjá hér að neðan. Við vekjum athygli á því að í því má sjá hundinn beittu skelfilegu ofbeldi. Umfjöllunin heldur áfram fyrir neðan spilarann.

Málið komst á borð lögreglunnar þegar vegfarandi fann minniskubb úr myndavélinni sem notuð var við upptökuna á gólfi verslunarmiðstöðvar. Viðkomandi þekkti bræðurna og gerði lögreglu viðvart. Báðir voru þeir handteknir sama dag og ákærðir vegna málsins. Þeir voru svo dæmdir í 21 vikna fangelsi, en dómarnir eru skilorðsbundnir til tveggja ára. Þá mega þeir ekki eiga dýr það sem þeir eiga eftir ólifað.

Myndbandið var tekið upp í október 2013, en það var ekki fyrr en í febrúar síðastliðnum að lögregla komst á snoðir um málið. Það reyndist of seint fyrir hundinn, tíkina Baby, því hún var svæfð svefninum langa um það bil þremur mánuðum eftir að myndbandið var tekið upp.

Eitt það ógeðslegasta

Í viðtali við Daily Express segir Gemma Lynch, fulltrúi RSPCA, stærstu dýraverndunarsamtaka Bretlands, sem kom að málinu, að á þeim tímapunkti hafi Baby verið búin að missa allan mátt í afturlöppunum. Gera má ráð fyrir því að barsmíðarnar hafi haft þau áhrif. Gemma hefur séð ýmislegt í starfi sínu fyrir RSPCA, en meðferðin á Baby sé einhver sú ógeðslegasta sem hún hafi séð.

„Allir sem hafa séð þetta myndband segja að þetta sé það grófasta sem sést hefur – og þetta fólk hefur séð ýmislegt,“ segir hún og vísar í starfsmenn dýraverndunarsamtaka.

300 þúsund skrifa undir

Sem fyrr segir hefur málið vakið mikla athygli í Bretlandi og nú þegar hafa 325 þúsund manns skrifað undir áskorun þess efnis að dæmt verði aftur í málinu gegn mönnunum. Blásið var til undirskriftarsöfnunar á vefnum Change.org.

Í samtali við Daily Express segir Alex Richardson-Lee, 24 ára, að um hundrað manns skrifi undir áskorunina á hverjum tíu mínútum að jafnaði. Alex segir að hann muni koma undirskriftunum til Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, á næstu dögum.

Ég óttast að vægir dómar muni senda þessum bræðrum – og öðrum dýraníðingum – skilaboð þess efnis að velferð dýra sé ekki forgangsmál

Þingmenn blanda sér í málið

Breskir þingmenn hafa einnig blandað sér í málið og kallað eftir því harðari refsingum yfir þeim sem gerast sekir um dýraníð. Einn þeirra er Anna Turley sem ritað hefur dómsmálaráðherra Bretlands, Michael Gove, vegna málsins.
„Ég óttast að vægir dómar muni senda þessum bræðrum – og öðrum dýraníðingum – skilaboð þess efnis að velferð dýra sé ekki forgangsmál. Þess vegna hef ég skrifað ráðherranum bréf þar sem ég óska eftir því að málið verði tekið upp,“ segir Anna.

Þingmaðurinn Jonathan Arnott tekur í sama streng. „Hverskonar ofbeldi þarf fólk eiginlega að beita til þess að því sé komið beinustu leið í fangelsi. Ég held að taka þurfi refsiramman vegna dýraníðs til endurskoðunar með það að marki að herða refsingar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“