Sýndi engin svipbrigði í dómsalnum – Þarf að greiða hátt í níu milljónir í sekt


Enski knattspyrnumaðurinn Adam Johnson, sem fyrr í mánuðinum var sakfelldur fyrir að hafa misnotað barn kynferðislega, hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi.
Johnson sem lék með enska úrvalsdeildarliðinu Sunderland fyrr á þessu tímabili, og á hefur leikið fyrir enska landsliðið, sýndi engin svipbrigði þegar að dómari las upp refsinguna í morgun. Frá þessu er greint í breskum fjölmiðlum, sem segja að Johnson hafi komið á harða spretti inn í dómsalinn til að forðast fjölmiðla.
Sjá einnig: Adam Johnson sakfelldur fyrir að misnota barn kynferðislega
Þar segir að Johnson verði strax fluttur í fangelsi og mun hann því eyða sinni fyrstu nótt í fangaklefa í nótt. Þá þarf Johnson einnig að greiða 50 þúsund pund, eða sem samsvarar tæpum níu milljónum króna, í sekt.
Eins og greint hefur verið frá var stúlkan sem Johnson átti í kynferðislegu sambandi við 15 ára og mikill aðdáandi Johnsons og Sunderlands.
Í umfjöllun MailOnline er haft eftir Johnson sem segist hafa „átt rétt á kynlífi“ og ekki hugsað um aldur stúlkunnar.