fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ríkisstjórnin samþykkir að veita 170 milljónum til Flugþróunarsjóðs

Markmiðið er að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 23. mars 2016 13:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita 170 milljónum króna til Flugþróunarsjóðs á þessu ári. Jafnframt er gert ráð fyrir að sjóðurinn hafi 300 milljónir króna til ráðstöfunnar á ári næstu ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Þar segir enn fremur að markmiðið með sjóðnum sé að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.

Það var þann 30. október síðastliðinn að ríkisstjórn Íslands samþykkti að fela iðnaðar- og viðskiptaráðherra að hefja undirbúning að stofnun flugþróunarsjóðs, en samþykktin byggði á tillögum nefndar sem forsætisráðherra skipaði um aukna möguleika í millilandaflugi.

Í tilkynningu ráðuneytisins segir að iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggi á það áherslu að sjóðurinn skuli settur á laggirnar strax á þessu ári.

Sjö manna stjórn verður yfir sjóðnum og skipar iðnaðar- og viðskiptaráðherra formann án tilnefningar. Aðrir stjórnarmenn verða tilnefndir af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Markaðsstofu Norðurlands, Austurbrú, Isavia og Íslandsstofu. Stjórnin ber ábyrgð á að úthlutanir sjóðsins samrýmist ríkisaðstoðarreglum EES-samningsins og þá skal hún setja sér starfsreglur til samræmis við tillögur nefndarinnar.

Ráðuneytið mun á næstu dögum óska eftir tilnefningum fyrrgreindra aðila í stjórn sjóðsins en gert er ráð fyrir að hún geti tekið til starfa um miðjan apríl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“