fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Enn óljóst hvort Sigurður hafi fallið eða verið veittir áverkar

Saksóknara tókst ekki að sanna það með þeim hætti að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að Börkur og Annþór hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru.

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 23. mars 2016 16:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Suðurlands segir í niðurstöðu sinni um sýknu Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar að miklar líkur séu á því að þeir séu þeir einu sem komi til greina sem gerendur í líkamsárás sem leiddi til andláts Sigurðar Hólms Sigurðsson, en ekki verði loku fyrir það skotið að aðrir en þeir tveir hafi haft möguleika á því að veita Sigurði þá áverka sem drógu hann til dauða.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands en þar eru Annþór og Börkur sýknaðir.

Niðurstaðan er ekki óyggjandi, heldur kemur fram að ekki sé hægt að útiloka að Sigurður hafi fallið og þannig hafi miltað hans rofnað. Fram kemur í dómi að aðeins tvennt komi til greina sem útskýri banamein Sigurðar, annarsvegar að honum hafi verið veittur áverki með höggi, eða hann hafi fallið. Af þessum ástæðum telur dómari að ekki sé hægt að sakfella þá Börk og Annþór þar sem sakfelling er ekki hafin yfir allan vafa.

Í framburði Þóru Steffensen, réttarmeinafræðings, kom fram að hún teldi ómögulegt að Sigurður hefði dottið í klefa sínum. Hann hefði þá átt að fá áverka á bringubogann og andlitið í það minnsta.

Sveinn Guðmundsson, verjandi Barkar, sagði við blaðamenn eftir að dómur féll að rannsóknin hefði verið afleit og aldrei hefði átt að gefa út ákæru í málinu. Öll gögn málsins hefðu bent til sýknu.

Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, sagði að dómurinn hefði verið í takt við það sem hann bjóst við. Engin sönnunargögn í málinu hefðu bent til þess að eitthvað refsivert hefði átt sér stað.

Saksóknari fór fram á að þeir Annþór og Börkur yrðu dæmdir í tólf ára fangelsi, en aðalmeðferðin fór fram í lok janúar. Málið er með þeim flóknari sem um getur í íslenskri réttarfarssögu, en það var til meðferðar hjá lögreglu og í réttarkerfinu í fjögur ár.

Saksóknari fór fram á tólf ára fangelsi yfir Berki og Annþóri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“