fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Fréttir

Viðar Freyr lét Vinnumálastofnun fá það óþvegið: „Þetta kalla ég að svara í sömu mynt“

Viðar Freyr var boðaður á fund en mætti ekki – Svaraði fyrir sig á kostulegan hátt

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 16. febrúar 2016 12:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðar Freyr Guðmundsson ákvað að bregða á leik þegar Vinnumálastofnun setti út á að hann hefði ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni. Forsaga málsins er sú að Viðar hafði sótt um atvinnuleysisbætur og þurfti hann í kjölfarið að skila inn ótal gögnum, vottorðum og fleiru.

Viðar segir að hann hafi svo verið boðaður á fund sem skyldumæting var á. „Ég fékk vinnu fljótlega eftir umsóknina og nennti satt best að segja ekki að standa í þessu rugli. Þangað til ég fékk hótun vegna þess að ég mætti ekki á umræddan fund,“ segir Viðar en hann deilir þessu í opinni færslu á Facebook-síðu sinni.

Í póstinum frá Vinnumálastofnun var óskað eftir skýringum frá Viðari á því af hverju hann mætti ekki á fundinn. Þurfti hann að láta fylgja með nafn og kennitölu og það tekið fram að það sé meginskilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit.

Hann ákvað að bregða á leik og svara skrifræði með skrifræði. „Hérna er svar mitt. Þetta kalla ég að svara í sömu mynt.“

Bréfið hefst á þessum orðum:

„Góðan dag. Umsókn þín um að vita um ferðir mínar umræddan dag hefur verið móttekin. Ég vil benda á að eftirfarandi gögn vantar til að afgreiða megi umsóknina.

  1. Skýringarbréf frá yfirmanni stofnunar yðar um tilgang fyrirspurnarinnar.
  2. Álit Persónuverndar til að mega spyrjast fyrir um ferðir mínar umræddan dag.
  3. Umsókn um leyfi til að senda fyrirspurnir undirritað af skrifstofustjóra heimilis míns í þríriti vottað af Sýslumanni. Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á skrifstofu minni milli kl. 16.30 til 20.00 virka daga.“

Hann telur upp fleiri atriði, rétt eins og Vinnumálastofnun gerði.

Hér að neðan má sjá samskipti Viðars og Vinnumálastofnunar.

(function(d, s, id) { var js, fjs = d.getElementsByTagName(s)[0]; if (d.getElementById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = „//connect.facebook.net/en_GB/sdk.js#xfbml=1&version=v2.3“; fjs.parentNode.insertBefore(js, fjs);}(document, ‘script’, ‘facebook-jssdk’));

Ég sótti um atvinnuleysisbætur fyrir nokkra daga. En það þurfti að skila inn ótal gögnum, vottorðum og yfirlýsingum…

Posted by Viðar Freyr Guðmundsson on Monday, 15 February 2016

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum
Fréttir
Í gær

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans

Helgi Hrafn varpar ljósi á hvað sé svona ógnvekjandi við kjarnorkuáætlun Írans
Fréttir
Í gær

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi

Telur að svarið í máli Jóns Þrastar sé að finna á Íslandi
Fréttir
Í gær

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“

Guðrún bálreið út í Kristrúnu: „Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að tala“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta