Starfsmaður ráðuneytisins á meðal umsækjenda


Tíu sóttu um stöðu skólameistara Borgarholtsskóla en umsóknarfrestur rann út 2. febrúar síðastliðinn. Á meðal umsækjenda um stöðuna er Ársæll Guðmundsson, fyrrverandi skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði, en hann hefur undanfarin misseri verið verkefnaráðinn í menntamálaráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið annast ráðningu í stöðuna að undangenginni umsögn skólanefndar. DV spurði menntamálaráðuneytið hvernig staðið yrði að ráðningu í stöðuna, í ljósi þess að á meðal umsækjenda er starfsmaður stofnunarinnar. Ingibjörg Ólafsdóttir, ritari ráðuneytisstjóra, svaraði því til að verið væri að „vinna að því að búa til ráðningarferli vegna ráðningar skólameistara Borgarholtsskóla og í því verður gætt að vanhæfisreglum stjórnsýslulaga“.
Menntamálaráðuneytið hefur síðastliðið ár ráðið skólameistara í Kvennaskólann, Framhaldsskólann á Laugum, VMA, Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum og Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Því hefur DV spurt hvort ekki sé til staðlað ráðningarferli fyrir skólameistara í framhaldsskólum, hvort ráðið verði með öðrum hætti en venjulega í stöðu skólameistara Borgarholtsskóla og hvort tengsl Ársæls við stofnunina ráði þá breyttu sniði. Loks spyr DV hvenær fyrir liggi með hvaða hætti verði ráðið í stöðuna. Við þessum spurningum hafa ekki fengist svör úr ráðuneytinu síðan á miðvikudag.
Umsækjendur eru auk Ársæls; Anton Már Gylfason, Ari Halldórsson, Ásta Laufey Aðalsteinsdóttir, Bjargey Gígja Gísladóttir, Guðrún Ragnarsdóttir, Ingi Bogi Bogason, Jón Eggert Bragason, Magnús Ingólfsson og Markús G. Sveinbjarnarson. Skipað verður í stöðuna til fimm ára, frá 1. apríl næstkomandi.