Engir gestir voru á hótelinu þegar kviknaði í byggingunni og enginn slasaðist
Maður sem grunaður er um íkveikju að Ljósalandi (Skriðulandi) í Dalabyggð hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. febrúar næstkomandi.
Lögreglunni á Vesturlandi var tilkynnt laust fyrir klukkan fimm í gæmorgun að ölvaður maður gengi berserksgang við Hótel Ljósaland í Dalabyggð. Lögreglan fór á vettvang en hálftíma síðar var tilkynnt að kviknað væri í hótelbyggingunni.
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að slökkviliðin í Dalabyggð, Strandabyggð og Reykhólahreppi hafi verið kölluð út og var einn maður handtekinn á vettvangi grunaður um að hafa kveikt í byggingunni. Hann er í haldi lögreglunnar.
Engir gestir voru á hótelinu þegar kviknaði í byggingunni og enginn slasaðist.